Innlent

Segir Kaupþingslán bera keim af markaðsmisnotkun

Helga Arnardóttir skrifar

Miklar líkur eru á að lán Kaupþings til stærstu lántakenda séu ólögmæt og bera þau keim af markaðsmiðsnotkun. Þetta segir framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta og jafnframt að stór hluti útlána bankans hafi verið til að kaupa hlutabréf í Kaupþingi og Existu til að halda uppi verði í félögunum tveimur.

Lögbannið sem sett var á Ríkisútvarpið í gær á birtingu gagna um stærstu lántakendur Kaupþings á eingöngu við Ríkisútvarpið en lesa má gögnin á wikileaks.org. Auk þess hafa aðrir íslenskir fjölmiðlar fjallað ítarlega um gögnin.

Í þeim kemur meðal annars fram að 10 stærstu lántakendur bankans hafi samtals fengið lán upp á rúma fimmtán hundruð milljarða sem jafnast á við um þreföld fjárlög ríkisins.

Þá voru önnur félög í hópi lántakenda eins og Össur sem fékk tæpa fjörutíu milljarða, Samvinnutryggingasjóðurinn rúma þrjátíu milljarða, félög tengd Björgólfsfeðgum tæpa 23 milljarða og félög tengd Þorsteini M. Jónssyni rúma 13 milljarða.

Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta, líkir gamla Kaupþingi við stóran vogunarsjóð.

Fréttastofa náði ekki í Hreiðar Má Sigurðsson fyrrverandi forstjóra Kaupþings en í samtali við Ríkisútvarpið fyrr í dag vísaði hann því á bug að lánveitingar bankans til tengdra aðila í eigendahópi hans varðaði við lög, þær hafi allar verið innan löglegra marka.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×