Verður tekinn af lífi í dag 10. nóvember 2009 06:00 John Allen Muhammad stóð svipbrigðalaus þegar dómari las úrskurð sinn um dauðadóm í mars árið 2004. Nordicphotos/AFP
Stjórnvöld í Virginíu undirbúa nú aftöku Johns Allens Muhammad, leyniskyttunnar sem skaut Bandaríkjamönnum heldur betur skelk í bringu fyrir sjö árum þegar hann fór um nágrannabyggðir Washington-borgar og myrti fólk úr launsátri dag eftir dag svo vikum skipti. „Ég held að allir hafi verið hræddir um öryggi sitt,“ segir Bernice Easter, 82 ára fyrrverandi kennslukona sem býr í bænum Wheaton í Maryland, þar sem Muhammad lét fyrst til skarar skríða. „Ég þorði ekki að fara út í garð.“ Muhammad var dæmdur fyrir að hafa myrt tíu manns í október árið 2002, ásamt félaga sínum Lee Boyd Malvo, sem var þá aðeins sautján ára. Þeir óku um á bláum Chevrolet Caprice, sem Muhammad hafði útbúið þannig að hann gat skriðið aftur í skottið og skotið út um gat þaðan. Morðin voru framin á þriggja vikna tímabili í október árið 2002. Svo virðist sem Muhammad hafi ætlað sér að ljúka morðunum með því að myrða fyrrverandi eiginkonu sína, Mildred Muhammad, í þeirri von að geta síðan fengið forræði þriggja barna þeirra. Í september síðastliðnum ákvað dómari í Virginíu að aftakan færi fram í dag. Malvo hlaut lífstíðar fangelsisdóm fyrir sinn hlut að morðunum.- gb
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Sjá meira