Fjörutíu lagðir inn vegna svínaflensu 22. október 2009 05:00 Farsóttanefnd Landspítalans hvetur fólk til að fara ekki í heimsóknir á spítalann. Þar sé fólk með inflúensu en einnig aðrir sem séu veikir af öðrum orsökum. Lasnir ættingjar eigi ekkert erindi inn á spítalann, segir yfirmaður smitsjúkdómadeildar.
Enn fjölgaði sjúklingum á Landspítala í gær vegna svínaflensu. Þeir voru 33 talsins, þar af sex á gjörgæslu. Sjö nýir voru innlagðir og fjórir útskrifaðir. Þá höfðu fimm einstaklingar verið lagðir inn á sjúkrahúsið á Akureyri af sömu ástæðu og einn á Blönduósi. Samkvæmt nýjum upplýsingum frá sóttvarnalækni kemur fram að fjöldi inflúensutilfella þrefaldaðist í síðustu viku miðað við vikuna þar á undan. Fólk á öllum aldri greinist með sjúkdóminn, flestir á aldrinum 15 til 19 ára. Frá lokum júní til 18. október bárust samtals 4246 tilkynningar um inflúensulík einkenni eða staðfesta svínaflensu samkvæmt skráningum lækna í rafrænar sjúkraskrár. Frá 23. september hafa 80 manns verið lagðir inn á Landspítala vegna flensunnar. „Spítalinn er undir miklu álagi þótt ekki sé komið að þolmörkum," segir Már Kristjánsson, yfirmaður smitsjúkdómadeildar Landspítalans. „En það þarf að huga að því sem gerist á næstu dögum og vikum. Sjúklingum með flensu hefur fjölgað dag frá degi að meðaltali. Ákvarðanataka ræðst af þróuninni á næstu dögum og jafnvel vikum." Hann segir að sú hugmynd að hafa alla flensusjúklinga á einum gangi hafi verið rædd en engin ákvörðun þar að lútandi tekin enn. „Við erum með ákveðna viðbragðsáætlun," segir hann. „Það segir sig sjálft að þegar herðir á þessum þætti í starfseminni þá getum við ekki sinnt öllu öðru sem við gerum venjulega. Mörgu af því er hægt að stjórna, til að mynda valkvæðri starfsemi. Okkur finnst ekki ástæða til þess í dag að breyta starfseminni með því að sinna einungis bráðum, aðkallandi verkefnum, en það gæti komið til þess á næstu dögum. Það ræðst af því hvernig málin þróast." Már segir að farsóttanefnd Landspítalans hvetji fólk til að fara ekki í heimsóknir á spítalann. Þar sé fólk með inflúensu en einnig aðrir sem séu veikir af öðrum orsökum. Lasnir ættingjar eigi ekkert erindi inn á spítalann. „Í rauninni er umferð fólks ekki af hinu góða á þessari stundu," segir hann, en segir ekki í umræðunni að banna allar heimsóknir á spítalann.
Mest lesið Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Innlent Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Innlent Fleiri fréttir „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Sjá meira