Hægt að panta tíma fyrir bólusetningu Jón Hákon Halldórsson skrifar 22. október 2009 12:18 Landlæknir. Mynd/ GVA.
Heilsugæslustöðvar landsins taka frá og með deginum í dag við tímapöntunum frá sjúklingum með tilgreinda „undirliggjandi sjúkdóma" og frá þunguðum konum vegna bólusetningar við svokallaðri svínaflensu. Byrjað verður að bólusetja þá sem þetta á við mánudaginn 2. nóvember 2009 og gert er ráð fyrir að það taki um fjórar vikur að bólusetja alla í þessum hópum - á sjötta tug þúsunda landsmanna. Á nokkrum heilsugæslustöðvum verður samt unnt að hefja þessa bólusetningu fyrir lok október, það er að segja á svæðum þar sem lokið er að bólusetja starfsmenn í heilbrigðisþjónustu og fólk í svokölluðum öryggishópum og lykilstörfum sem eru lögregla, slökkvilið, aðgerðastjórnir almannavarna og fleira. Viðkomandi heilsugæslustöðvar kynna nánar hvernig staðið er að málum. Í fréttatilkynningu frá sóttvarnalækni og almannavarnadeild segir að ætla megi að mikið álag verði á símakerfi heilsugæslunnar í dag og næstu daga. Fólk er því vinsamlegast beðið um að sýna biðlund og skilning á meðan þetta sérstaka ástand varir. Gert er ráð fyrir því að læknar sjúklinga með undirliggjandi sjúkdóma hvetji þá til að láta bólusetja sig og afhendi þeim sérstakt staðfestingarblað sem framvísað er við bólusetninguna. Þá geta sjúklingar sem greindir hafa verið með sjúkdóma á listanum einnig pantað tíma í bólusetningu þó þeir hafi ekki fengið staðfestingarblöð.
Mest lesið Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Innlent Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Innlent Fleiri fréttir „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ Sjá meira