Fyrrum tengdaforeldrar sýknaðir af þjófnaði 22. október 2009 20:00 Hæstiréttur
Fyrrum tengdaforeldrar þrítugrar stúlku voru í dag sýknaðir af kröfu um miskabætur en voru dæmdir til þess að greiða henni rúmar tólf þúsund krónur. Tengdaforeldrarnir voru einnig sýknaðir af kröfu um afhendingu muna sem þeir tóku af heimili stúlkunnar. Fyrrum sambýlismaður stúlkunnar, sonur hjónanna, lést af slysförum árið 2000. Skömmu eftir fráfallið fór stúlkan erlendis en tengdaforeldrarnir brutust þá inn á heimili hennar og fjarlægðu muni sem þeir töldu að væru í eigu sonar síns. Eitthvað af mununum sagði stúlkan að foreldrar sínir hefðu framselt henni og væru því í hennar eigu. Einnig var um að ræða muni sem hún hafði átt í sameign með fyrrverandi sambýlismanninum. Hæstiréttur féllst á að tengdaforeldrarnir hefðu brotið gegn stúlkunni með því að brjóta upp lás á íbúðinni og farið inn í hana. Hinsvegar þótti ósannað að þau hefðu tekið í sínar vörslur þá muni sem er rætt. Þá var jafnframt talið að hjólbarðar og nánar tilgreind húsgögn og rafmagnstæki hefðu verið greidd af fyrrum sambýlismanninum og væru því í eigu dánarbús hans. Tengdaforeldrarnir voru því sýknaðir af kröfu stúlkunnar um afhendingu á kertastjaka fyrir sprittkerti, sykurstauk, stálskál, gullarmbandi, rauðri möppu með persónulegum gögnum sínum og eldhúsborði úr gleri frá Ikea. Hún var síðan dæmd til þess að greiða fyrrum tengdaforeldrum sínum 1.620.000 krónur í málskostnað.
Mest lesið Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Erlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Skiluðu hagnaði á kosningaári Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira