Búið að skila spurningalista ESB 22. október 2009 16:10
Íslensk stjórnvöld skiluðu í dag inn svörum við spurningalista framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sem er hluti af samræmdu umsóknarferli að ESB samkvæmt tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Þar segir ennfremur að öll ráðuneyti stjórnarráðsins og fjöldi undirstofnana hafi unnið að svörunum sem telja rúmlega 2600 blaðsíður, auk fylgiskjala, samtals 8870 síður. Á grundvelli svara íslenskra stjórnvalda mun framkvæmdastjórnin gefa leiðtogaráði ESB álit sitt á hvort Ísland uppfylli viðmið til að verða formlegt umsóknarríki að Evrópusambandinu. Spurningar framkvæmdastjórnarinnar eru rúmlega 2500 talsins og eru viðamikil kortlagning á gildandi löggjöf og framkvæmd hennar, stjórnsýslu málaflokka og stefnumörkun á fjölda sviða. Svörin eru staðreyndalýsingar en lúta ekki að samningsmarkmiðum Íslands. Í tilkynningunni segir að vinna við svörin hafi gengið hratt og vel en um sex vikur eru liðnar síðan Olli Rehn, stækkunarstjóri ESB, afhenti íslenskum stjórnvöldum spurningalistann hinn 8. september síðastliðinn. Þá segir í tilkynningu að sérfræðingar bæði innan og utan stjórnsýslunnar hafi unnið að svörunum. Náið samráð var haft við starfshóp utanríkismálanefndar um Evrópumál. Einnig var samráð haft við félagasamtök og hagsmunaaðila, t.d. Bændasamtökin, Landssamband íslenskra útvegsmanna, Samband íslenskra sveitarfélaga, aðila vinnumarkaðarins, Neytendasamtökin, talsmann neytenda og sérfræðinga úr háskólasamfélaginu, sem fóru yfir svörin. Framkvæmdastjórn ESB hefur hafið vinnu við yfirferð svaranna og verður áframhaldandi samráð og samskipti við fulltrúa hennar eins og þarf á meðan á vinnslu álits framkvæmdastjórnarinnar stendur. Svörin er að finna á heimasíðu utanríkisráðuneytisins.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Innlent Fleiri fréttir „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Sjá meira