Fórnuðu fóstureyðingum til að ná fram nýju frumvarpi 9. nóvember 2009 03:00 Sætur sigur Leiðtogar demókrata í fulltrúadeildinni héldu blaðamannafund eftir að frumvarpið var í höfn.fréttablaðið/AP
Heilbrigðisfrumvarpið sem neðri deild Bandaríkjaþings samþykkti seint á laugardag er eitt flóknasta frumvarp sem nokkru sinni hefur komið til afgreiðslu þingsins. Frumvarpið var samþykkt með 220 atkvæðum gegn 215. Einungis einn repúblikani studdi frumvarpið, en 39 demókratar voru á móti. Öldungadeildin á enn eftir að afgreiða frumvarpið, og þarf sextíu atkvæði af hundrað til þess að stöðva málþóf um frumvarpið. Barack Obama Bandaríkjaforseti sagðist sannfærður um að öldungadeildin muni samþykkja frumvarpið þegar það komi til kasta hennar. „Ég hlakka til að undirrita lögin fyrir árslok,“ sagði hann. Verði frumvarpið að lögum fá 36 milljónir Bandaríkjamanna heilbrigðistryggingar í viðbót við þá, sem fyrir eru tryggðir. Þar með á að vera tryggt að 96 prósent Bandaríkjamanna njóti heilbrigðistrygginga. Aðrir eiga auk þess kost á aðstoð frá ríkinu til að kaupa sér tryggingar á lágu verði. Talið er að nærri fimmtíu milljónir Bandaríkjamanna séu nú án heilbrigðistrygginga. Ákvæði frumvarpsins taka þó ekki öll gildi fyrr en árið 2013. Demókratar náðu auk þess engan veginn fram öllum þeim breytingum, sem þeir höfðu vonast til. Meðal annars þurftu þeir að fallast á breytingartillögu, sem bannar öll ríkisútgjöld vegna fóstureyðinga, að öðrum kosti hefði frumvarpið ekki náð meirihluta. Frumvarp öldungadeildarinnar verður ekki samhljóða frumvarpi fulltrúadeildarinnar, þannig að eftir afgreiðslu öldungadeildar þarf nefnd skipuð fulltrúum beggja deilda að samræma frumvörpin og leggja samræmdu útgáfuna síðan fyrir báðar deildirnar til endanlegrar samþykktar. Þar með yrði einu helsta baráttumáli demókrata undanfarna áratugi náð að mestu, þótt ekki hafi allt náðst fram sem að var stefnt. Breytingarnar á heilbrigðistryggingakerfi Bandaríkjanna nú yrðu þær mestu sem gerðar hafa verið síðan 1964. Repúblikanar voru þó margir hverjir engan veginn kátir með niðurstöðuna: „Heilbrigðiskerfið verður yfirtekið af ríkinu hraðar en hönd á festir, mér býður við þessu,“ sagði Candice Miller og bætti því við að demókratar væru staðráðnir í að samþykkja frumvarp sem yki atvinnuleysi og fjárlagahalla og leiddi til hærri skatta.gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Sjá meira