Öryggisvörður hvarf með 10 milljónir evra Atli Steinn Guðmundsson skrifar 6. nóvember 2009 08:40
Lögregla í Frakklandi leitar nú dyrum og dyngjum að öryggisverði sem gerði sér lítið fyrir og ók á brott í peningaflutningabíl með 10 milljónir evra. Það var í gærmorgun sem bíllinn gufaði upp, stútfullur af peningum en áætlað er að rúmlega 10 milljónir evra, jafnvirði tæplega 1,9 milljarða króna, hafi verið í öryggishólfi bílsins. Af þriggja manna áhöfn fóru tveir öryggisvarðanna inn í banka til að ná í peninga sem verið var að flytja fyrir Frakklandsbanka í borginni Lyon. Þeir ráku upp stór augu þegar þeir komu út aftur þar sem bíllinn var á bak og burt og með honum félagi þeirra, ökumaðurinn. Uppi varð fótur og fit og hóf lögregla þegar víðtæka leit að bílnum en slökkt hafði verið á GPS-staðsetningartæki og síma í honum. Þegar bíllinn fannst loksins á afviknum stað vantaði tvennt í hann, bílstjóra og 10 milljónir evra. Hvorki hefur fundist tangur né tetur af bílstjóranum enn þá og segir Xavier Richaud saksóknari í samtali við fjölmiðla að eðlilega falli grunur á bílstjórann. Sá er um fertugt og þegar farið var að kanna málið nánar reyndist hann hafa tæmt bankareikninga sína daginn áður svo væntanlega eru orð saksóknarans ekki alveg úr lausu lofti gripin. Nú er bara að bíða eftir því að franskur öryggisvörður með tæpa tvo milljarða í vasanum dúkki upp á einhverri paradísareyju sunnarlega á hnettinum.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Sjá meira