Framkvæmdin gæti ógnað vatnsbólunum 6. nóvember 2009 06:00
Sú hætta er óhjákvæmileg að lagning Suðvesturlínu hafi neikvæð áhrif á vatnsverndarsvæði og um leið neysluvatn ef mengunarslys verði. Þetta kemur fram í umhverfismati Skipulagsstofnunar um framkvæmdina. Er þar tekið undir áhyggjur heilbrigðisnefnda sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Framkvæmdin er engu að síður talin svo þjóðhagslega mikilvæg að rétt sé að ráðast í hana. Fagaðilar töldu að best væri að fara aðra leið með línuna en yfir vatnsbólin. Sveitarfélögin töldu þá leið hins vegar heppilegasta, enda væri lína þar fyrir og vegur henni tengdur. Hann þyrfti að styrkja, en með því væri komist hjá því að leggja nýjan veg. Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets, segir að allrar varúðar verði gætt við lagningu línunnar. Engin eiginleg viðbragðsáætlun sé til ef mengunarslys verði, en þau mál verði að skoða. Þórður segir fyrirtækið ekki tryggt fyrir tjóni af því tagi; besta tryggingin sé að standa vel að málum. Sérstaklega verði hugað að því í útboðinu og við val á verktökum. Hjá Orkuveitunni eru til viðbragðsáætlanir verði slys. Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að við framkvæmdir Klæðningar inni á vatnsverndarsvæðinu sumarið 2007 hafi þrír vörubílar oltið. Svo heppilega hafi viljað til í öll skiptin að þeir ultu á „rétta hlið" þannig að búnaður tengdur olíunni skemmdist ekki og ekki dropi af olíu lak niður. Fjórði bíllinn valt utan svæðisins og olíupannan fór undan honum með þeim afleiðingum að mikil olía fór í jarðveginn. Bæði heilbrigðisnefnd Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis og Heilbrigðisnefnd Reykjavíkur töldu framkvæmdina geta ógnað vatnsbólunum. Brugðist var við ábendingum þeirra um framkvæmdatíma og ýmislegt fleira. - kóp
Mest lesið Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Innlent Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Innlent „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Innlent Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Innlent „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Innlent „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Innlent Spændi upp mosann á krossara Innlent Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól Innlent Rússar virðast hafa litlar áhyggjur af hótunum Trump Erlent Hleypti líklega óvart úr Innlent Fleiri fréttir Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Hitinn 14 til 28 stig í dag: Vara við því að skilja hundinn eftir í bílnum Fjöldi ökumanna sektaður fyrir að leggja ólöglega Akureyri skelfur vegna jarðhræringa við Grímsey Inga ætlar ekki að biðjast afsökunar Tæpur fjórðungur umræðutímans fór í veiðigjöld Þyrlan kölluð út að sækja veikan farþega á skemmtiferðakipi „Kemur af sama lager og það sem er selt í partýinu í næsta bæ“ Spændi upp mosann á krossara Netið sló út í miðborginni og Hlíðunum Bræður „moka inn“ á límónaðisölu og egg spælt á bíl Sögulegt þing, geðrof eftir meðferð og bongóblíða Dópsalar handteknir sem reyndust dvelja ólöglega á Íslandi Stjórnarandstaðan sakar forseta um alvarlegan trúnaðarbrest Mótmæltu komu „spilltrar“ der Leyen Hvetja fólk til að fara sparlega með vatn Rak landganginn í flugvélina og gerði gat Sjá meira