Ákærðir fyrir að vera tengiliðir hryðjuverkamanna Atli Steinn Guðmundsson skrifar 6. nóvember 2009 07:18 Tarek Mehanna.
Gefnar hafa verið út ákærur á hendur tveimur mönnum í Massachusetts fyrir að vera tengiliðir við hryðjuverkamenn og vera þeim til aðstoðar. Þeir Tarek Mehanna og Ahmad Abousamra hafa lengi verið viðfangsefni rannsóknar lögreglu í bænum Sudbury í Massachusetts og eru tengsl þeirra við al Qaeda-hryðjuverkasamtökin nú talin sönnuð. Meðal annars sáu þeir um þýðingar á ýmsu efni af arabísku yfir á ensku auk þess sem talið er að þeir hafi lagt á ráðin um að fremja sjálfir hryðjuverk en sú áætlun hafi strandað á því að þeim tókst ekki að verða sér úti um sjálfvirk skotvopn. Þá hafa mennirnir báðir verið í sambandi við þriðja manninn, Daniel Maldonado, sem þegar situr í fangelsi fyrir að hafa sótt þjálfunarbúðir á vegum al Qaeda. Erfitt gæti reynst að hafa hendur í hári annars hinna ákærðu, það er Ahmad Abousamra, þar sem hann er um þessar mundir búsettur í Sýrlandi og fer þar huldu höfði. Mehanna situr hins vegar í gæsluvarðhaldi í Sudbury og bíður þess að koma fyrir dómara 12. nóvember. Hann er 27 ára gamall lyfjatæknir sem býr hjá foreldrum sínum og var áður handtekinn og yfirheyrður í janúar vegna gruns um að vera milligöngumaður hryðjuverkamanna. Hann á einnig von á ákæru fyrir að hafa vísvitandi logið að alríkislögreglunni við yfirheyrslurnar sem þá áttu sér stað.
Mest lesið Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Erlent Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Innlent Sæti Artúrs logar Erlent Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Erlent 27 daga frostlausum kafla lokið Veður Nýtt skilti komið upp og rauða ljósið mun loga oftar Innlent Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Innlent Tíu metra djúp hola í ísnum á vinsælli gönguleið Innlent Eyðilegging eftir skjálfta í Tyrklandi Erlent Fleiri fréttir Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Eyðilegging eftir skjálfta í Tyrklandi Ástralir hyggjast viðurkenna sjálfstæða Palestínu Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Sæti Artúrs logar Fundur Selenskí, Pútíns og Trump á næsta leiti Stór skjálfti reið yfir í Tyrklandi Furðar sig á viðvaningshætti í Washington og segir fundinn óþarfan Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali Sjaldan fleiri mótmælt ríkisstjórninni Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Sjá meira