Jarðýtum beitt á búðir flóttamanna 23. september 2009 03:30 Flóttafólkið hafði komið sér fyrir þarna í von um að komast yfir til Bretlands. fréttablaðið/AP
Franska lögreglan réðst í gærmorgun til atlögu gegn ólöglegum búðum flóttamanna, sem höfðu komið sér fyrir skammt frá borginni Calais við Ermarsund, í þeirri von að komast yfir til Englands um Ermarsundsgöngin. Hundruð manna voru handtekin í „Frumskóginum“, eins og búðirnar voru nefndar. Að því búnu fór lögreglan með jarðýtur yfir svæðið til að hreinsa burt bráðabirgðatjöldin, gerð úr dúkum, plasti og staurum, sem fólkið hafði dvalist í. Söguð voru niður tré og runnar sem notuð höfðu verið sem tjaldstangir. Alls voru 278 manns handteknir í fyrstu umferð, en um helmingur þeirra var á barnsaldri. Flestir reyndust vera frá Afganistan. „Þessari aðgerð er ekki beint gegn flóttafólkinu sjálfu, heldur er henni beint gegn starfsemi þeirra sem stunda smygl á fólki, sem misnota fólkið,“ sagði Eric Besson, innanríkismálaráðherra Frakklands. Vaxandi spenna hafði verið í samskiptum Frakka og Breta vegna búðanna við Calais. Óvíst er hvað verður um flóttamennina. Um 180 þeirra hafa fallist á að fara aftur til síns heima, en 170 ætla að sækja um hæli í Frakklandi. Aðrir verða væntanlega reknir úr landi, líklega til Grikklands, sem er það land í Evrópusambandinu sem þeir komu fyrst til.- gb
Mest lesið Sakar sveitastjórann um atvinnuróg og „kæfandi klámhögg“ Innlent Óheppilegt ef fölsk mynd varpar sök á saklausan mann Innlent „Eins og að vera úti á rúmsjó“ í Eyjum annað kvöld Veður Skiptar skoðanir um umfang og kostnað vegna listaverks Ólafs í Eyjum Innlent Níu ára og með sitt eigið „Fannars bakarí“ í Njarðvík Innlent „Komið nóg af áföllum“ Innlent Á bát í Kyrrahafi þegar skjálftaflóðbylgjur skullu á Innlent Hafi látið högg og spörk dynja á foreldrunum í tíu klukkustundir Innlent Eldri borgarar sem verði fyrir ofbeldi ættingja geti hvergi leitað Innlent Ferðamaður lést við Breiðamerkursand Innlent Fleiri fréttir Leynilega geimfarið sent á sporbraut í áttunda sinn Samþykkja ný lög um spillingarrannsóknir eftir mótmæli Múhameð eykur forskotið og enginn nefndur Keir Gera miklar breytingar á kjördæmum Texas, að beiðni Trumps Suðureyjargöng skilyrt hækkun eftirlaunaaldurs Kínverjar leita leiða til að granda gervihnöttum Musks Í áfalli eftir að hafa fengið bréf frá árásarmanninum inn um lúguna Dregur í land og segir Starmer og félaga verðlauna Hamas Létu sprengjum rigna á Kænugarð Segja 30 hafa látist í skotárás Ísraelshers við dreifingu neyðargagna Kanada í hóp þeirra sem hyggjast viðurkenna sjálfstæði Palestínu Sjö dáið úr hungri síðasta sólarhringinn Rannsaka tengsl þyngdarstjórnunarlyfja við bráða brisbólgu Gargaði á flokksfélaga sína Fyrsta ástralska geimflaugin flaug í fjórtán sekúndur Maxwell vill friðhelgi fyrir vitnisburðinn Vill greiða sex milljarða tryggingu til að losna úr haldi Pokrovsk riðar til falls 8,8 stiga skjálfti í Rússlandi: Flóðbylgjuviðvaranir gefnar út víða um Kyrrahaf Arabaríki og lönd ESB kalla eftir tveggja ríkja lausn og afvopnun Hamas Ísland ekki í fararbroddi heldur fylgi öðrum í humátt á eftir „Hann stal henni“ Bretar hyggjast viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt ríki Færeyingar heita refsiaðgerðum gegn Rússlandi: „Eigum eftir að sjá hvernig efndirnar verða“ Gefa lítið fyrir afarkosti Trumps Ætlaði í höfuðstöðvar NFL Bandarískir trúboðar herja á einangraða ættbálka með drónum og sólarknúnum afspilunartækjum Trump um Epstein: „Hann stal fólki sem vann fyrir mig“ Íhuga að greiða sextíu milljarða til að friðþægja Trump Hyggjast greiða 60 þúsund á ári fyrir öll börn undir þriggja ára Sjá meira