Innlent

Sjómannadeginum víða fagnað

MYND/Anton Brink
Sjómannadeginum er víða fagnað í dag. Sérstök hátíðardagskrá Sjómannadagsráðs verður á Sjóminjasafninu á Grandagarði klukkan tvö. Þar flytur Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra ávarp ásamt fulltrúum sjómanna og útvegsmanna.

Nóg verður um að vera á Grandagarðinum í allan dag en á meðal þess sem hægt er að gera er að fylgjast með Landhelgisgæslunni sýna björgun úr hafi.

Á Hrafnistu mun harmonikkuleikur hljóma á öllum deildum í tilefni dagsins og sérstök sýning og sala verður á handverki heimilismanna eftir hádegi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×