Tvær konur hæfari en bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar Valur Grettisson skrifar 14. apríl 2009 13:20 Tvær konur voru hæfari en Garðar Páll Vignisson sem Samfylkingin vildi sem skólastjóra Hópsskóla.
Tvær konur voru hæfari en bæjarfulltrúinn Garðar Páll Vignisson til þess að gegna starfi skólastjóra við Hópsskóla í Grindavík. Þetta kemur fram í fundargerð Fræðslu- og uppeldisnefndar Grindarvíkurbæjar. Meirihlutasamstafi Samfylkingarinnar og Framsóknarflokksins lauk formlega í gær með bréfi sem Framsókn sendi Samfylkingunni. Ástæðan var meðal annars djúpstæður ágreiningur um það hver ætti að fá starf skólastjóra við Hópsskóla. Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, Garðar Páll, sem er að auki forseti bæjarstjórnar, sótti um starfið. Samfylkingin bókaði á fundi bæjarstjórnar að hann ætti að fá starfið. Þessu var Framsókn ósammála. Á fundi Fræðslu- og uppeldisnefndar þann sjötta apríl kemur fram að í samræmi við greinagerð Capacent um úttekt á hæfi umsækjanda, þá hafi Maggý Hrönn Hermannsdóttir og Soffía Vagnsdóttir verið hæfastar í starfið. Þar af leiðandi eftirláti nefndin bæjarstjórn að velja aðra hvora í starfið. Samfylkingin bókar aftur á móti á fundi Fræðslu- og uppeldisnefndar að Garðar Páll sé fyllilega hæfur í starfið samkvæmt greinargerð fagaðilans, sem er Capacent. Þá segir ennfremur í bókun Samfylkingarinnar að það samræmist starfsmannastefnu Grindavíkurbæjar að ráða hann í starfið. Ekki náðist í Soffíu þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir en hún kom ekki til greina í starfið samkvæmt fundargerð bæjarstjórnar en Framsókn mældi með Maggý Hrönn í starfið á meðan Samfylkingin vildi Garðar Pál. Nú er meirihutinn sprunginn vegna málsins en bæjarfulltrúar Framsóknar og Sjálfstæðismanna munu funda síðdegis um hugsanlegt samstarf flokkanna.
Tengdar fréttir Meirihlutaslit: Svekkjandi ef þetta endar svona „Mér finnst það fulllangt gengið í pólitísku harki að menn fái ekki að sækja um störf," segir Garðar Páll Vignisson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Grindavík og forseti bæjarstjórnar. Framsóknarmenn slitu formlega samstarfi flokkanna með bréfi sem þeir sendu Samfylkingunni í gær. 14. apríl 2009 12:17 Meirihlutinn í Grindavík sprunginn „Hún er bara sprungin," sagði bæjarfulltrúi sjálfstæðismanna í Grindavík, Sigmar Eðvarsson, um stöðu meirihluta bæjarstjórnar í bænum. Svo virðist sem meirihlutinn, sem samanstóð af Framsóknarflokknum og Samfylkingunni, sé einfaldlega sprunginn. 14. apríl 2009 09:58 Mest lesið Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Erlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Skiluðu hagnaði á kosningaári Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Innlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Fleiri fréttir Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Skötuilmurinn leggst yfir landið og Samkeppniseftirlitið ætlar að fylgjast vel með bensínverðinu Áfram auknar líkur á eldgosi Sjá meira
Meirihlutaslit: Svekkjandi ef þetta endar svona „Mér finnst það fulllangt gengið í pólitísku harki að menn fái ekki að sækja um störf," segir Garðar Páll Vignisson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Grindavík og forseti bæjarstjórnar. Framsóknarmenn slitu formlega samstarfi flokkanna með bréfi sem þeir sendu Samfylkingunni í gær. 14. apríl 2009 12:17
Meirihlutinn í Grindavík sprunginn „Hún er bara sprungin," sagði bæjarfulltrúi sjálfstæðismanna í Grindavík, Sigmar Eðvarsson, um stöðu meirihluta bæjarstjórnar í bænum. Svo virðist sem meirihlutinn, sem samanstóð af Framsóknarflokknum og Samfylkingunni, sé einfaldlega sprunginn. 14. apríl 2009 09:58