Meirihlutaslit: Svekkjandi ef þetta endar svona Valur Grettisson skrifar 14. apríl 2009 12:17 Garðar Páll Vignisson er svekktur yfir stöðunni. „
Mér finnst það fulllangt gengið í pólitísku harki að menn fái ekki að sækja um störf," segir Garðar Páll Vignisson, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Grindavík og forseti bæjarstjórnar. Framsóknarmenn slitu formlega samstarfi flokkanna með bréfi sem þeir sendu Samfylkingunni í gær. Ástæðan var meðal annars djúpstæður ágreiningur um ráðningu í skólastjórastöðu Hópsskóla. Meðal umsækjanda var Garðar Páll sjálfur en Samfylkingin lagði fram bókun á síðasta fundi bæjarstjórnar þar sem hún lagði til að hann yrði ráðinn til starfsins. Þessu voru Framsóknarmenn ósammála og lögðu sjálfir fram bókun. Þeir vildu að Maggý Hrönn Hermannsdóttir yrði ráðinn. Capacent hafði komist að þeirri niðurstöðu að bæði Maggý og Garðar Páll væru hæf til starfsins. Í bókun Framsóknarmanna kemur fram að Capacent hafi álitið Maggý hæfari í starfið. Aðspurður hvort Garðar Páll telji það ekki óeðlilegt að forseti bæjarstjórnar sé ráðinn í starf skólastjóra bæjarins svarar hann: „Nei, ég sé eiginlega ekkert að því enda er það þannig að þessi orðaleikur um pólitískar ráðningar er skrýtinn. Menn þurfa fjögur atkvæði til þess að vera ráðinn." Þess má geta að Samfylkingin hefur tvo bæjarfulltrúar og þurftu því samþykki Framsóknar í málinu. Garðar Páll segir að í lýðræðislegu samfélagi séu hæfustu mennirnir ráðnir. Spurður hvort Capacent hafi ekki einmitt komist að því að Maggý væri hæfari til starfsins, svarar Garðar því til að hann sé ekki sammála því. Hann bendir á að Capacent hafi ekki heldur mælt sérstaklega með neinum þeirra sem voru taldir hæfir. En það sé rétt að hún hafi verið metinn hæfari en hann af Capacent. „Stöðuveitingar eru alltaf erfiðar, tengslin liggja víða og sitt sýnist hverjum," segir Garðar Páll en hann heldur því fram að Framsóknarflokkurinn hafi krafist þess að hann drægi umsókn sína til baka. Hann segir málið farsa og ef upp úr slitni þá sé hann miður sín. Spurður hvort samstarfinu sé ekki endanlega slitið, segist hann ekki telja svo. Enn sé verið að ræða við Framsóknarflokkinn um áframhaldandi samstarf. „Við erum búinn að vinna flotta hluti og það væri svekkjandi ef þetta endaði svona," segir Garðar Páll að lokum. Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn munu funda síðdegis um hugsanlegt meirihlutasamstarf. Það yrði þá þriðja samstarfið sem kæmist á frá kosningum árið 2006.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fleiri fréttir „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Sjá meira