Innlent

Lýst eftir þykkum rauðhærðum manni frá Þorlákshöfn

Einhverstaðar í Þorlákshöfn gengur rauðhærður maður um göturnar með slæma samvisku.
Einhverstaðar í Þorlákshöfn gengur rauðhærður maður um göturnar með slæma samvisku.

Lögreglan á Selfossi rannsakar líkamsárás sem átti sér stað þann 22. mars. Þá á maður að hafa ráðist á unga stúlku með þeim hætti að hann tók hana á loft og skellti á bakið í götuna.

Stúlkan lýsti árásarmanninum þannig að hann hafi verið 185 til 190 sentimetrar á hæð, svolítið þykkur með rauðleitt stutt hár og eigi heima í Þorlákshöfn.

Lögreglan á Selfossi biður þá sem þekkja til þessa atviks eða getur veitt upplýsingar að hafa samband í síma 480 1010.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×