Ábendingar um svik færri en áður 7. september 2009 06:00 Forstjóri Vinnumálastofnunar segir aðgerðir í átaki vegna svika á atvinnumarkaði hafa ákveðið forvarnargildi. Ekki sé mikið um að fólk og fyrirtæki séu staðin að verki.fréttablaðið/gva „
Ábendingunum hefur aðeins fækkað frá því sem var þegar átakið var fyrst kynnt að ráði. Þá fengum við tæplega hundrað ábendingar, enda var auglýsingaherferð sett af stað,“ segir Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar. Milli sextíu og sjötíu ábendingar um atvinnuleysisbótasvik bárust stofnuninni í ágúst. Síðan í maí hefur fólki gefist tækifæri til að leggja inn nafnlausar ábendingar til Vinnumálastofnunar og Ríkisskattstjóra um svik á vinnumarkaði. Átakið, sem er unnið í samstarfi Ríkisskattstjóra og Vinnumálastofnunar, var kynnt rækilega í júlímánuði. Yfirlýst markmið átaksins er að skapa almennt aðhald á vinnumarkaði og hafa áhrif til varnaðar á fólk og fyrirtæki ásamt því að finna þá sem brotið hafa af sér. Átakið snýr bæði að einstaklingum og fyrirtækjum. Að sögn Gissurar reynast langflestar ábendingar sem berast varðandi einstaklinga, sem grunur leikur á að þiggi atvinnuleysisbætur þrátt fyrir að vera í vinnu, ekki á rökum reistar. „Þegar um fyrirtæki er að ræða þurfum við að heimsækja þau sem ábendingar berast um. Einnig beitum við óundirbúnum heimsóknum. Til að mynda heimsótti teymi frá okkur ein fimmtán fyrirtæki á Laugaveginum í vikunni. Margir fyrirtækjaeigendur eru ánægðir með að fá okkur í heimsókn, til að staðfesta að allt sé í góðu lagi, og einnig til að fólk fái tilfinningu fyrir því að eitthvert eftirlit eigi sér stað,“ segir Gissur Pétursson.
Mest lesið Segir ljóst að Víðir hafi brotið stjórnsýslulög: „Það er verið að kaupa sér vinsældir“ Innlent Ætlar að gera allt í sínu valdi til að tryggja rekstur Kaffistofunnar Innlent Loka kaffiskúrnum umtalaða við Leifsstöð Innlent Öryggismál að eiga reiðufé heima fyrir „ef í harðbakkann slær“ Innlent Ríkið keypti nýjan sendiherrabústað á 750 milljónir Innlent Inga endurvekur 25 metra regluna Innlent „Auðvitað bregður fólki“ Innlent Stöðvaði miðasölu um leið og hann áttaði sig á stöðu mála Innlent Hrottalegu ofbeldi lýst í ákæru á hendur Stefáni, Lúkasi og Matthíasi Innlent Fádæma úrhelli á Ólafsfirði Innlent Fleiri fréttir Segir ljóst að Víðir hafi brotið stjórnsýslulög: „Það er verið að kaupa sér vinsældir“ Ætlar að gera allt í sínu valdi til að tryggja rekstur Kaffistofunnar Fádæma úrhelli á Ólafsfirði Hildur er nýr formaður Almannaheilla Loka kaffiskúrnum umtalaða við Leifsstöð Öryggismál að eiga reiðufé heima fyrir „ef í harðbakkann slær“ Um 100 skemmtiferðaskip í Vestmannaeyjum í sumar „Auðvitað bregður fólki“ Ríkið keypti nýjan sendiherrabústað á 750 milljónir Hlutfall barna sem beitti foreldra eða skylda ofbeldi tvöfaldaðist Strandveiðimenn huga að samstöðufundi við Austurvöll Tilkynningum um heimilisofbeldi fjölgar og endurfrumsýning Brúðubílsins Skemmtiferðaskipi snúið vegna vinds „Djöflablístur“ stafi líklega af svölum nýbygginga Stöðvaði miðasölu um leið og hann áttaði sig á stöðu mála Hrottalegu ofbeldi lýst í ákæru á hendur Stefáni, Lúkasi og Matthíasi Tvöfalt fleiri Parkinson-sjúklingar eftir fimmtán ár Alvarlegum ofbeldisbrotum fjölgað á síðustu kvartöld „Þetta eru alveg galin vinnubrögð“ Sex ára fangelsi fyrir árás á fyrrverandi sambýliskonu Mygla í Árnasafni: „Handritin eru örugg“ Inga endurvekur 25 metra regluna Bílastæðið rifið upp með rótum Hlýjasti maímánuður á landinu frá upphafi mælinga „Ég vil fá að ráða hvar ég slátra og hverja ég er í viðskiptum við“ Krefur Ríkisútvarpið um leiðréttingu Ekki ólíklegt að þingið fari nokkra daga fram yfir „Hef mikinn skilning á því að Víðir hafi gert þetta“ Horft til tillagna um að minni fyrirtæki verði undanskyld jafnlaunavottun Heimurinn undrist villimennsku Íslendinga Sjá meira