InDefence hópurinn krefst tafarlausra viðbragða frá stjórnvöldum 8. maí 2009 16:18 Ólafur Elíasson, einn talsmanna InDefence hópsins.
Ólafur Elíasson, einn forsvarsmanna InDefence hópsins segir það algjörlega óhugsandi að láta Gordon Brown forsætisráðherra Breta komast upp með málflutning á borð við þann sem hann viðhafði í breska þinginu á miðvikudag. Þar kenndi Brown Íslendingum um það að ekki væri búið að greiða til baka milljónir punda í krabbameinssjóði Christie spítalans í Manchester, þrátt fyrir að sjóðurinn hafi aldrei verið á ábyrgð íslenska Fjármálaeftirlitsins eins og Brown staðhæfði. „Þetta hlýtur að vera einn versti almannatengslasnúningur gegn íslenskri þjóð sem hugsast getur, að Íslendingar séu að níðast á krabbameinssjúkum börnum," segir Ólafur sem krefst aðgerða af hálfu íslenskra stjórnvalda. „Það kemur ekki annað til mála en að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra mótmæli þessu kröftuglega á opinberum vettvangi." InDefence hópurinn sendi frá sér tilkynningu í dag sem fer hér á eftir í heild sinni: „InDefence hópurinn krefst þess að íslensk stjórnvöld komi hörðum mótmælum á framfæri opinberlega beint til forsætisráðherra Bretlands og til allra helstu fjölmiðla Bretlands. Í fyrirspurnartíma í neðri deild breska þingsins þann 6. maí var Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, spurður um afdrif 6,5 milljón sterlingspunda innstæðu krabbameinssjóðs Christie's sjúkrahússins í Manchester í Kaupþing Singer og Friedlander (KSF). Í svari forsætisráðherrans kom fram alvarleg rangfærsla þegar hann hélt því fram að hér væri við íslensk yfirvöld að sakast og þau ættu að endurgreiða þessa upphæð, þar sem reikningurinn hafi verið á ábyrgð íslenska fjármálaeftirlitsins. Hið rétta er að KSF var breskur banki sem starfaði undir eftirliti breskra fjármálayfirvalda. Þann 8. október 2008 tók breska fjármálaeftirlitið (FSA) yfir stjórn KSF og bera því bresk yfirvöld alla ábyrgð á innstæðum í bankanum eftir þann tíma. Einnig upplýsti Gordon Brown að bresk stjórnvöld hefðu verið í samingaviðræðum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS) um uppgjör Íslendinga á innistæðum Icesave reikninganna, en slíkar viðræður eru ólögmætar, enda langt fyrir utan starfssvið AGS að hafa áhrif á tvíhliðasaminga Íslendinga og Breta í þessu máli. Indefence hópurinn skorar á íslensk stjórnvöld að bregðast strax við þessu nýjasta útspili Gordon Browns, sem í annað skipti á sjö mánuðum hefur notað Íslendinga sem boxpúða í spunastríði um vinsældir heima fyrir. Aftur hefur hann vegið að heiðri og brotthættri ímynd Íslendinga á alþjóðavettvangi með því að fullyrða nú að íslensk yfirvöld neiti að standa við skuldbindingar sínar við góðgerðasamtök sem reka Christie's spítalann fyrir krabbameinssjúklinga í Manchester í stað þess að gangast við eigin ábyrgð. Indefence hópurinn krefst þess að íslensk stjórnvöld komi hörðum mótmælum á framfæri opinberlega beint til forsætisráðherra Bretlands og til allra helstu fjölmiðla Bretlands. Það verður að krefjast þess að Gordon Brown leiðrétti og biðjist afsökunar á fullyrðingum sínum um ábyrgð íslenskra stjórnvalda á innistæðum Christies spítalanum. Enn fremur verða íslensk stjórnvöld að fara fram á að Brown veiti frekari upplýsingar um óeðlilegar og ólögmætar samningaviðræður Breta við AGS um uppgjör á Icesave málinu. Nú kann að vera að íslensk stjórnvöld átti sig ekki á því hvers vegna slík mótmæli eru nauðsynleg. Við munum því útskýra það til öryggis. Hér er ekki bara um að ræða sært stolt þjóðar sem orðið hefur fyrir alvarlegu efnahagshruni. Íslensk stjórnvöld eiga í samningaviðræðum bæði við bresk stjórnvöld um Icesave málið og AGS um viðreisn á efnahagi þjóðarinnar. Í báðum tilfellum hefur mótherjinn haft mjög sterka samningsstöðu gagnvart Íslendingum og rökstuddur grunur hefur áður komið fram um að Bretar hafi bak við tjöldin styrkt samningstöðu sína með því að tefja afgreiðslu AGS á lánum til Íslands. Sterk samingsstaða Breta gagnvart Íslendingum byggir ekki síst á þeirri útbreiddu túlkun að þeir séu brotaþolar en Íslendingar fjárglæframenn sem ekki vilja gera upp skuldir sínar. Bakland og samningsstaða breskra stjórnvalda mun óhjákvæmilega veikjast ef umheimurinn áttar sig á því að Gordon Brown geri ekki greinarmun á eigin skuldum og skuldum Íslendinga og hafi annað hvort viljandi eða í fávísi farið með rangt mál um það á breska þinginu. Ef fullyrðingar Gordon Brown um ólögmætar samingaviðræður breskra stjórnvalda við AGS um uppgjör á Icesave reikningum verða staðfestar mun samningsstaða beggja aðila gagnvart Íslendingum versna til muna. Ef fullyrðingarnar reynast rangar þá minnkar trúverðugleiki og bakland Gordon Browns, sem veikir um leið samningsstöðu Breta. Verri samningsstaða breskra stjórnvalda og AGS þýðir betri samningsstöðu fyrir Ísland og það skiptir öllu máli fyrir okkur að ná hagstæðum samningum við þessa aðila. Eftir fyrstu spunaherferð breskra stjórnvalda gegn Íslendingum þann 8. október, þegar þeir beittu Íslendingum m.a. hryðjuverkalögum, lýsti þáverandi forsætisráðherra Íslands því yfir að hann vildi ekki munnhöggvast við Gordon Brown. Jóhanna, Steingrímur, Össur og aðrir ráðherrar í ríkisstjórn Íslands, þið hljótið að gera ykkur grein fyrir því að nú er kominn tími til að munnhöggvast við Gordon Brown. Sýnið þor og djörfung og gangið fram vasklega til að bæta samningsstöðu Íslendinga gagnvart breskum stjórnvöldum og AGS."
Tengdar fréttir Bretar í viðræðum við AGS vegna Icesave skulda Gordon Brown, forsætisráðherra Breta sagði í fyrirspurnatíma á breska þinginu í gærkvöldi að stjórnvöld þar í landi væru í viðræðum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn hversu hratt Íslendingar muni greiða til baka það tjón sem þeir eru ábyrgir fyrir í Bretlandi. 7. maí 2009 13:47 Hugsanlegt að Brown hafi reynt að beita AGS þrýstingi Þorvaldur Gylfason telur ekki óhugsandi að forsætisráðherra Breta hafi reynt að beita stjórnendur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þrýstingi á bakvið tjöldin. Þorvaldur telur þó að slíkar tilraunir geti varla borið árangur. 8. maí 2009 15:23 Össur kallar breska sendiherrann á sinn fund Utanríkisráðherra hefur ákveðið að kalla breska sendiherrann á sinn fund vegna ummæla Gordons Browns forsætisráðherra Bretlands um ábyrgð Íslands gagnvart því að Christie spítalinn í Manchester hafi tapað fé hjá Kaupþingi í Bretlandi. 8. maí 2009 11:59 Segir Brown illa upplýstan Íslensk stjórnvöld hafa óskað etir skýringum frá breskum stjórnvöldum vegna ummæla Gordon Brown forsætisráðherra Breta í gær. Brown sagði meðal annars að stjórnvöld bresk stjórnvöld væru í viðræðum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um hversu hratt Íslendingar muni greiða til baka það tjón sem þeir eru ábyrgir fyrir í Bretlandi. 8. maí 2009 16:37 Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent Fleiri fréttir Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Sjá meira
Bretar í viðræðum við AGS vegna Icesave skulda Gordon Brown, forsætisráðherra Breta sagði í fyrirspurnatíma á breska þinginu í gærkvöldi að stjórnvöld þar í landi væru í viðræðum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn hversu hratt Íslendingar muni greiða til baka það tjón sem þeir eru ábyrgir fyrir í Bretlandi. 7. maí 2009 13:47
Hugsanlegt að Brown hafi reynt að beita AGS þrýstingi Þorvaldur Gylfason telur ekki óhugsandi að forsætisráðherra Breta hafi reynt að beita stjórnendur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þrýstingi á bakvið tjöldin. Þorvaldur telur þó að slíkar tilraunir geti varla borið árangur. 8. maí 2009 15:23
Össur kallar breska sendiherrann á sinn fund Utanríkisráðherra hefur ákveðið að kalla breska sendiherrann á sinn fund vegna ummæla Gordons Browns forsætisráðherra Bretlands um ábyrgð Íslands gagnvart því að Christie spítalinn í Manchester hafi tapað fé hjá Kaupþingi í Bretlandi. 8. maí 2009 11:59
Segir Brown illa upplýstan Íslensk stjórnvöld hafa óskað etir skýringum frá breskum stjórnvöldum vegna ummæla Gordon Brown forsætisráðherra Breta í gær. Brown sagði meðal annars að stjórnvöld bresk stjórnvöld væru í viðræðum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um hversu hratt Íslendingar muni greiða til baka það tjón sem þeir eru ábyrgir fyrir í Bretlandi. 8. maí 2009 16:37