Hugsanlegt að Brown hafi reynt að beita AGS þrýstingi Jón Hákon Halldórsson skrifar 8. maí 2009 15:23 Þorvaldur Gylfason segir hugsanlegt að Brown hafi reynt að beita Alþjóðagjaldeyrissjóðinn þrýstingi vegna Icesave.
Það er hugsanlegt að forsætisráðherra Breta hafi reynt að beita stjórnendur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þrýstingi á bakvið tjöldin, að mati Þorvaldar Gylfasonar, hagfræðiprófessors og fyrrverandi starfsmanns sjóðsins. Þorvaldur telur þó að slíkar tilraunir geti varla borið árangur. „Um einkaviðtöl getur maður aldrei sagt neitt að sjálfsögðu," segir Þorvaldur, aðspurður hvort hann telji að Gordon Brown forsætisráðherra Breta hafi rætt við sjóðinn. „Opinber viðtöl af því tagi tel ég þó ólíklegt, ef ekki beinlínis óhugsandi, að Bretar geti átt við sjóðinn. Því að þetta mál er algjörlega utan við verkahring sjóðsins og það færi þess vegna ekki vel á því," segir Þorvaldur. Hann segist því hafa fulla trú á þeim skýringum sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur gefið eftir að ummæli Browns, um samskipti hans við sjóðinn, fóru í loftið í gær. Fastafulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hér á landi þvertekur fyrir að sjóðurinn hafi blandað sér inn í þessa deilu. Um sé að ræða mál sem að ríkin verði að leysa tvíhliða. „En eins og ég segi, um einkaviðtöl getur maður ekki sagt," segir Þorvaldur. Hann segir ekki óhugsandi að Brown hafi reynt að beita einhverja áhrifamenn hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum þrýstingi vegna málsins. „En sjóðurinn á að vera búinn undir tilraunir til slíks þrýstings á bak við tjöldin og á að vera þeim vopnum búinn að hann á að geta staðist hann. Því að öll aðildarríki sjóðsins eru samkvæmt stjórnarskrá sjóðsins jöfn óháð stærð og efnahagi. Þess vegna stangast það á við grundvallarhugsun á bak við sjóðinn ef eitt land í krafti stærðar sinnar getur öðlast einhvern einkaaðgang að sjóðnum vegna samskipta sjóðsins við miklu smærra land," segir Þorvaldur. Þorvaldur segir óhugsandi að slíkt myndi gerast fyrir opnum tjöldum og óhugsandi að sjóðurinn myndi ganga til slíks sambands við Breta á bakvið tjöldin.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Innlent Fleiri fréttir Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Sjá meira