Innlent

Segir Brown illa upplýstan

Össur Skarphéðinsson ræddi við blaðamenn á eftir fundi hans með fulltrúa sendiherra Breta. Mynd/ Anton.
Össur Skarphéðinsson ræddi við blaðamenn á eftir fundi hans með fulltrúa sendiherra Breta. Mynd/ Anton.
Íslensk stjórnvöld hafa óskað etir skýringum frá breskum stjórnvöldum vegna ummæla Gordons Brown forsætisráðherra Breta í vikunni. Brown sagði meðal annars að bresk stjórnvöld væru í viðræðum við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um hversu hratt Íslendingar muni greiða til baka það tjón sem þeir eru ábyrgir fyrir í Bretlandi.

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sagði við blaðamenn eftir fund með fulltrúa sendiráðs Bretlands á Íslandi eftir hádegi í dag að sendiherra Íslendinga hefði farið í Downingstræti og rætt málin þar. Össur segir von á yfirlýsingu um málið frá Bretum.

Þá sagði Össur það óheppilegt að Brown skyldi ekki vera betur upplýstur um stöðu mála en raun ber vitni. Hann hefði meðal annars sagt að innistæður Christies spítalans hefði verið á ábyrgð íslenska fjármálaeftirlitsins. Christies spítalinn átti hins vegar innistæður hjá Singer & Friedlander bankanum sem laut eftirliti breska fjármálaeftirlitsins, en ekki íslenskra eftirlitsaðila.
















Fleiri fréttir

Sjá meira


×