James Bond leyfð öllum en Madagascar 2 bönnuð 26. maí 2009 05:15 Tómas segir að misræmi í aldursmerkingum á DVD-myndum hér á landi sé bagalegt.
Tómas Valgeirsson, einn af stjórnendum síðunnar Kvikmyndir.is og starfsmaður raftækjadeildar Hagkaupa sem selur DVD-diska, segir að misræmi í aldursmerkingum á DVD-myndum sé bagalegt. Tómas ætlar að koma á fót aðgengilegum og öflugum gagnagrunni á síðunni kvikmyndir.is sem foreldrar geta stuðst við í framtíðinni vilji þeir kaupa eða leigja mynd fyrir börnin sín. Tómas nefnir sem dæmi að James Bond-myndin Quantum of Solace hafi í bíó verið bönnuð innan tólf ára en á DVD sé hún leyfð öllum aldurshópum. Önnur mynd sem kom út um svipað leyti, teiknimyndin Madagascar 2, er aftur á móti bönnuð innan sjö ára. „Segjum sem svo að ég vissi ekkert um kvikmyndir og ég ætti fimm ára dóttur. Hvora myndina ætti ég að leyfa henni að horfa á? Myndina með stanslausri kúlnahríð og hálfnöktu kvenfólki eða saklausu teiknimyndina um talandi dýr? Samkvæmt hulstrinu er mér frekar vísað á ofbeldisfullu myndina,“ segir Tómas. Bætir hann við að nánast daglega sé hann spurður út í hinar ýmsu myndir og hvort börn megi horfa á þær. Ástæðan fyrir þessu er oft á tíðum villandi aldursmerkingar. Síðan kvikmyndaeftirlitið var lagt niður fyrir nokkrum árum hafa dreifingaraðilar sjálfir ákveðið hvernig aldurstakmörkum DVD-mynda er háttað. Miðað við fyrrnefnt dæmi um Bond og Madagascar getur stundum verið erfitt að taka mark á þeim. „Það væri sniðugt að koma stöðugum gagnagrunni af stað. Við hjá kvikmyndir.is erum til í að taka slíkt skref. Þá myndu tiltekin aldurstakmörk varðveitast og foreldrar hafa betri hugmynd um hvað væri hentugast fyrir börnin,“ segir Tómas. „Við myndum skrá niður tiltekin aldurstakmörk sem fylgja myndunum í bíó, þó svo að það geti ekkert endilega alltaf verið betra. Stundum eru þessir stimplar notaðir til að lokka fleira fólk í bíó. Stundum er mynd skráð stranglega bönnuð innan sextán ára bara til að auka spennuna hjá unglingunum sem hafa áhuga á að sjá blóð og viðbjóð.“ Tómas tekur fram að með gagnagrunninum, sem vinna er þegar hafin við, sé ekki verið að setja sig í spor Kvikmyndaeftirlitsins sáluga heldur einungis veita almenningi upplýsingar um þær aldursmerkingar sem hafa verið gefnar upp í kvikmyndahúsum hérlendis. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lífið Fleiri fréttir Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Sjá meira