Lífið

James Bond leyfð öllum en Madagascar 2 bönnuð

Tómas segir að misræmi í aldursmerkingum á DVD-myndum hér á landi sé bagalegt.
Tómas segir að misræmi í aldursmerkingum á DVD-myndum hér á landi sé bagalegt.

Tómas Valgeirsson, einn af stjórnendum síðunnar Kvikmyndir.is og starfsmaður raftækjadeildar Hagkaupa sem selur DVD-diska, segir að misræmi í aldursmerkingum á DVD-myndum sé bagalegt.

Tómas ætlar að koma á fót aðgengilegum og öflugum gagnagrunni á síðunni kvikmyndir.is sem foreldrar geta stuðst við í framtíðinni vilji þeir kaupa eða leigja mynd fyrir börnin sín.

Tómas nefnir sem dæmi að James Bond-myndin Quantum of Solace hafi í bíó verið bönnuð innan tólf ára en á DVD sé hún leyfð öllum aldurshópum. Önnur mynd sem kom út um svipað leyti, teiknimyndin Madagascar 2, er aftur á móti bönnuð innan sjö ára. „Segjum sem svo að ég vissi ekkert um kvikmyndir og ég ætti fimm ára dóttur. Hvora myndina ætti ég að leyfa henni að horfa á? Myndina með stanslausri kúlnahríð og hálfnöktu kvenfólki eða saklausu teiknimyndina um talandi dýr? Samkvæmt hulstrinu er mér frekar vísað á ofbeldisfullu myndina,“ segir Tómas. Bætir hann við að nánast daglega sé hann spurður út í hinar ýmsu myndir og hvort börn megi horfa á þær. Ástæðan fyrir þessu er oft á tíðum villandi aldursmerkingar.

Síðan kvikmyndaeftirlitið var lagt niður fyrir nokkrum árum hafa dreifingaraðilar sjálfir ákveðið hvernig aldurstakmörkum DVD-mynda er háttað. Miðað við fyrrnefnt dæmi um Bond og Madagascar getur stundum verið erfitt að taka mark á þeim. „Það væri sniðugt að koma stöðugum gagnagrunni af stað. Við hjá kvikmyndir.is erum til í að taka slíkt skref. Þá myndu tiltekin aldurstakmörk varðveitast og foreldrar hafa betri hugmynd um hvað væri hentugast fyrir börnin,“ segir Tómas.

„Við myndum skrá niður tiltekin aldurstakmörk sem fylgja myndunum í bíó, þó svo að það geti ekkert endilega alltaf verið betra. Stundum eru þessir stimplar notaðir til að lokka fleira fólk í bíó. Stundum er mynd skráð stranglega bönnuð innan sextán ára bara til að auka spennuna hjá unglingunum sem hafa áhuga á að sjá blóð og viðbjóð.“

Tómas tekur fram að með gagnagrunninum, sem vinna er þegar hafin við, sé ekki verið að setja sig í spor Kvikmyndaeftirlitsins sáluga heldur einungis veita almenningi upplýsingar um þær aldursmerkingar sem hafa verið gefnar upp í kvikmyndahúsum hérlendis.

freyr@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.