Á faraldsfæti í allt sumar 4. júní 2009 07:00 Emiliana Torrini Emilíana Torrini spilar bæði á Glastonbury-hátíðinni og Rock Werchter í sumar.
Fjöldi íslenskra tónlistarmanna verður á faraldsfæti í sumar. Á meðal viðkomustaða eru tvær af stærstu tónlistarhátíðum Evrópu, Hróarskelda og Glastonbury. Emilíana Torrini og Lay Low spila báðar á The Park-sviðinu á Glastonbury á Englandi 26. júní. Á meðal annarra flytjenda þennan dag á sama sviði verða Animal Collective og The Horrors. Emilíana, sem er að kynna plötu sína Me and Armini, spilar einnig á Rock Werchter í Belgíu 2. júlí, sem er ein stærsta tónlistarhátíð Evrópu eins og Glastonbury. Glastonbury-hátíðin var fyrst haldin árið 1970, degi eftir að Jimi Hendrix dó. Dregur hún jafnan til sín fjölda þekktra flytjenda og í ár má þar nefna Neil Young, Blur og Nick Cave and the Bad Seeds. Hróarskelduhátíðin í Danmörku hefur verið haldin hátíðleg síðan 1971 og í ár spila þar Coldplay, Oasis og Kanye West, svo fáein nöfn séu talin upp. Hjaltalín verður þar einnig og stígur hún á stokk á fyrsta kvöldinu, fimmtudaginn 2. júlí. Ekki er ljóst á hvaða sviði sveitin verður en margir bíða þessarar frumraun hennar á hátíðinni með mikilli eftirvæntingu. Hún hefur verið á stórri tónleikaferð um Evrópu síðan í vor, og henni lýkur ekki fyrr en í haust. Áður en Hjaltalín mætir á svæðið spilar tónlistarkonan Kira Kira 30. júní á Pavilion-sviðinu í Hróarskeldu, því sama og Bloodgroup var á í fyrra. Um er að ræða stórt tjald fyrir um tíu þúsund áhorfendur þar sem ungir og upprennandi tónlistarmenn fá að spreyta sig í aðdraganda hátíðarinnar. Múm spilar á tveimur smærri tónlistarhátíðum á Englandi í sumar, eða Loop Festival í Brighton 12. júlí og á Summer Sundae-hátíðinni í Leicester 14. ágúst. Einnig spilar hún á Feneyjatvíæringnum á Ítalíu 17. og 18. júní og heldur síðan nokkra tónleika til viðbótar þar í landi, meðal annars í Róm og Flórens. Jóhann Jóhannsson verður duglegur við tónleikahald frá 25. júní til 14. júlí. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá spilar hann í Warhol-listasafninu í Pennsylvaníu, auk þess sem New York og Chicago verða á meðal viðkomustaða. Hljómsveitin For A Minor Reflection hóf tónleikaferð sína um Evrópu í gær og stendur hún yfir til 19. júní. Flestir tónleikarnir verða í Þýskalandi, Hollandi og Bretlandi. Einnig verður Gus Gus á fullu í allt sumar, þar sem President Bongo verður mest áberandi sem plötusnúður. Flest giggin verða í Þýskalandi og Danmörku, meðal annars á Vega, sem íslenskir tónlistarmenn ættu að kannast við. Einnig spilar sveitin á Sonar-hátíðinni í Barcelona sem verður haldin 19. til 21. júní. Á meðal fleiri hljómsveita á faraldsfæti í sumar eru rokkararnir í Gavin Portland sem fara í stórt tónleikaferðalag um Evrópu 28. ágúst til 11. september og dansboltarnir í Bloodgroup sem spila á tónlistarhátíð í Toronto 18. og 20. júní og á G!-hátíðinni í Færeyjum skömmu síðar. Einnig ætlar Steed Lord að spila bæði í Evrópu og Ástralíu á næstu mánuðum. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Nicole er fyrir norðan Lífið Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Lífið Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Lífið Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Lífið Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Lífið Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lífið Fleiri fréttir Verjendur Davis segja ekkert að marka skjólstæðing sinn Lofar að minnast Panettiere ávallt af virðingu Stórglæsilegt Sigvaldahús á sölu Leikkonan var úrskurðuð látin á vettvangi Hvað veistu um... frjálsar íþróttir? Galvaskt gelludjamm hjá Guggu og guggunum Nicole er fyrir norðan Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Sjá meira