Háskólinn í verulega alvarlegri klemmu 20. desember 2008 06:00 Kristín Ingólfsdóttir rektor stendur frammi fyrir því, við þau kjör sem háskólinn býr nú við, að þurfa annaðhvort að hafna vongóðum umsækjendum eða eiga á hættu að gæði námsins minnki.
Háskólaráð fer fram á aukafjárveitingu til Háskóla Íslands (HÍ) vegna niðurskurðar á fjárveitingu til skólans og aukinnar ásóknar nemenda. Í ályktun ráðsins frá því í fyrradag segir að HÍ hafi brugðist við kalli stjórnvalda um að opna dyr sínar fyrir umsóknum um nám á vormisseri 2009 til þess að bregðast við auknu atvinnuleysi sem hlýst af fjármálakreppunni. HÍ rýmkaði umsóknarfrestinn, opnaði fyrir umsóknir í fögum þar sem venjulega er ekki bætt við nemendum á miðju skólaári og nú hafa alls 1.630 umsóknir borist. Á sama tíma hefur fjárveiting ríkisins til skólans verið skorin niður um tæpan milljarð sem eru tíu prósent af áætlaðri fjárveitingu. „Við erum í verulega alvarlegri klemmu,“ segir Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskólans. „Annars vegar stöndum við frammi fyrir því að þurfa hugsanlega að segja nei við fólk sem er atvinnulaust og gerir verulegar væntingar til þess að komast í háskólanám eða þá að segja já og taka þá áhættu að það bitni á gæðum námsins.“ Spurð hvort HÍ geti leyft sér að minnka kröfur sínar um gæði segir hún, „það kemur hreinlega ekki til greina“. Dregist hefur að svara umsækjendum vegna þessa en Kristín segist vongóð um að fjárlagafrumvarp liggi fyrir á mánudag en þá kemur háskólaráð saman. Hún segist ekki vilja segja til um það hversu há fjárveitingin þurfi að vera eða hversu mörgum HÍ geti tekið við fáist aukafjárveitingin ekki.- jse
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Fleiri fréttir SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Sjá meira