Afleiðingar verðbólgu á húsnæðislán 29. apríl 2008 20:56
Verðbólgan mælist nú 11,8 prósent hefur ekki verið meiri í átján ár. Fram kom í máli Grétars Þorsteinssonar, forseta ASÍ, í fréttum Stöðvar tvö í gær að þetta kunni að hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér. Einstaklingur keypti sér íbúð á 20 milljónir króna árið 2005. Íbúðina greiddi hann með 100 prósenta jafngreiðsluláni til 25 ára með föstum 4,15 prósent vöxtum. Fyrsta afborgun nam 107 þúsund krónum og var greidd í febrúar sama ár. Þegar verðbólgunnar fer að gæta 1. júní næstkomandi verður mánaðarleg afborgun af láninu komin upp í 134 þúsund krónur og hefur því hækkað um alls 27 þúsund krónur frá fyrsta gjalddaga. Þetta gerir um 324 þúsund krónur aukalega á ári. Til samanburðar má nefna að samkvæmt samantekt Hagstofunnar námu meðallaun á almennum vinnumarkaði í fyrra um þrjú hundruð og þrjátíu þúsund krónum. Því má segja að hækkunin á afborguninni éti upp mánaðarlaun venjulegs launamanns. Eftir að hafa greitt fjörutíu sinnum af láninu er niðurstaðan þessi: Þann 1. júní næstkomandi hefur höfuðstóll lánsins hækkað um þrjár milljónir og stendur lánið þá í tuttugu og þremur milljónum. Bara á þessu ári hefur lánið hækkað um tæpa milljón vegna verðbólgu. Á sama tíma hefur verðmæti íbúðarinnar aukist um tæpar 15 milljónir miðað við meðalhækkun íbúða á höfuðborgarsvæðinu. Fari hins vegar svo að spá Seðlabankans um 30 prósenta lækkun íbúðaverðs gangi eftir verður söluverðmæti íbúðarinnar komið niður í 24,5 milljónir í lok næsta árs. Haldi verðbólgan áfram að aukast getur því sú staða hæglega komið upp að verðmæti íbúðarinnar verði minna en lánið sem á henni hvílir. Seljandi þyrfti því að borga með sér ef hann ætlaði sér að selja íbúðina.
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Sjá meira