Segir Kompás hafa valdið sér ómældum fjárhagslegum skaða 16. desember 2008 15:47
Björgvin Þór Þorsteinsson, sem var umfjöllunarefni Kompás í gærkvöldi, hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar þáttarins. Þar segir hann meðal annars að umsjónarmenn þáttarins hafi reynt að gera lítið úr og rýra trúverðugleika sinn. Björgvin segist ætla að leita til lögmanns með tilliti til þess hvort rétt sé að höfða mál á hendur ritstjóra og ábyrgðarmanni Kompáss fyrir tilraun til mannorðsmorðs og að hafa valdið sér ómældum fjárhagslegum skaða. Yfirlýsingu Björgvins má sjá hér að neðan: „Í sjónvarpsþættinum Kompási í gærkvöldi, 15. desember, var fjallað um ferli gjaldþrota einstaklinga og það lögformlega ferli sem á sér stað þegar einstaklingar lenda í greiðsluerfiðleikum. Á meðal efnis í þættinum var leynileg upptaka þáttarins af samskiptum undirritaðs við leikara á vegum Kompáss, sem léku hlutverk pars í greiðsluerfiðleikum. Einkasamtal undirritaðs við leikarana var til þess gert að varpa skugga á fullkomlega lögleg viðskipti. Þau viðskipti snúast ekki um að koma fólki í greiðsluerfiðleika, heldur eru þau hugsuð sem möguleg leið út úr greiðsluerfiðleikum. Með því að ganga til liðs við undirritaðan eiga einstaklingar í greiðsluerfiðleikum möguleika á því að vinna til baka tapaða fjármuni með því að taka þátt í áhættufjárfestingum. Í umfjöllun Kompáss var ýmislegt gert til þess að varpa rýrð á orðspor undirritaðs. Þáttargerðarmenn kusu að birta texta með samtali mínu við leikara þáttarins, þar sem farin var sú leið að hafa textann skrifaðan eftir orðanna hljóðan í stað þess að birta rétt stafsett orð. Með þessu móti hafa þáttargerðarmennirnir vafalaust viljað gera lítið úr mér sem einstaklingi og styrkja frekar eigin framsetningu. Eins var sérstaklega tekið fram að stafsetningarvillur í ákveðnum tölvupósti, sem þáttargerðarmennirnir höfðu undir höndum, væru ekki umsjónarmanna þáttarins heldur undirritaðs. Sjálfsagt vilja forsvarsmenn Kompáss skrifa þetta á nákvæm vinnubrögð en auðvelt er að færa rök fyrir því að fyrirætlan þeirra sé heldur að gera lítið úr og rýra trúverðugleika þess sem um er fjallað. Rétt er að taka fram að viðskiptavinum undirritaðs er gert fyllilega ljóst að áhættufjárfestingar séu í eðli sínu vandasamar. Rétt eins og þær geta reynst vera mjög ábatasamar geta þær líka falið í sér að peningar tapist. Aðferðir undirritaðs fela í sér að einstaklingar, sem eru í greiðsluerfiðleikum, geti varist með ýmsu móti harkalegum innheimtuaðferðum kröfuhafa gegn einstaklingum en leitun er að ómanneskjulegri gjaldþrotalöggjöf en hér á landi. Því er alfarið hafnað að undirritaður hafi brotið nokkur lög með þjónustu sinni. Jafnframt hefur undirritaður óskað eftir því að lögmaður hans kanni réttarstöðu hans með tilliti til þess hvort rétt sé að höfða mál á hendur ritstjóra og ábyrgðarmanni Kompáss fyrir tilraun til mannorðsmorðs og að valda undirrituðum ómældum fjárhagslegum skaða."
Tengdar fréttir Kompás í kvöld: Lögmaður hótar lögsókn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður, hefur sent fréttaskýringaþættinum Kompási bréf fyrir hönd umbjóðanda síns Björgvins Þorsteinssonar. Í bréfinu segir, að verði auglýstur Kompásþáttur sem er á dagskrá í kvöld sýndur með óbreyttu sniði, sé Björgvini nauðugur einn sá kostur að höfða skaðabótamál á hendur 365 hf. 15. desember 2008 14:28 Kompás í kvöld: Almannahagsmunir í húfi Jóhannes Kr. Kristjánsson, ritstjóri Kompáss, segir að málið sem tekið sé fyrir í Kompás í kvöld varði almannahagsmuni. Í þættinum er sýnt frá því þegar útsendarar Kompáss hitta Björgvin Þorsteinsson sem auglýst hafði eftir því að komast í samband við fólk sem væri illa statt fjárhagslega en þó ekki gjaldþrota. Fólkið átti að fá greitt fyrir að taka á sig skuldir óskyldra aðila þar sem það væri hvort sem er á leið í gjaldþrot. 15. desember 2008 16:46 Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Sjá meira
Kompás í kvöld: Lögmaður hótar lögsókn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður, hefur sent fréttaskýringaþættinum Kompási bréf fyrir hönd umbjóðanda síns Björgvins Þorsteinssonar. Í bréfinu segir, að verði auglýstur Kompásþáttur sem er á dagskrá í kvöld sýndur með óbreyttu sniði, sé Björgvini nauðugur einn sá kostur að höfða skaðabótamál á hendur 365 hf. 15. desember 2008 14:28
Kompás í kvöld: Almannahagsmunir í húfi Jóhannes Kr. Kristjánsson, ritstjóri Kompáss, segir að málið sem tekið sé fyrir í Kompás í kvöld varði almannahagsmuni. Í þættinum er sýnt frá því þegar útsendarar Kompáss hitta Björgvin Þorsteinsson sem auglýst hafði eftir því að komast í samband við fólk sem væri illa statt fjárhagslega en þó ekki gjaldþrota. Fólkið átti að fá greitt fyrir að taka á sig skuldir óskyldra aðila þar sem það væri hvort sem er á leið í gjaldþrot. 15. desember 2008 16:46