„Aldrei auðvelt að taka ákvörðun um ákæru“ 2. maí 2008 11:33 Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi.
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, segist ekki tjá sig um einstök mál við fjölmiðla. Í Fréttablaðinu í dag er hann sakaður um kaldlyndi af Helgu Jónsdóttur í lesendabréfi. Maður hennar var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir hegningar- og umferðarlagabrot þrátt fyrir ítrekaðar óskir Helgu um að falla frá ákæru. Sýslumaður segir aldrei auðvelt að taka ákvörðun um að ákæra en hann bendir á að dómur hafi gengið í málinu auk þess sem farið hafi verið fram á allra vægustu refsingu. Málavextir eru þeir að Helga varð fyrir því í maí í fyrra að lenda í hörðum árekstri á Suðurlandsvegi. Hún var farþegi í bílnum ásamt þriggja mánaða dóttur sinni og maður hennar var við stýrið. Helga slasaðist einna mest og þurfti að gangast undir endurhæfingu í kjölfarið. Maður hennar slasaðist einnig en dóttirin slapp ómeidd og það gerði ökumaður hins bílsins einnig. Hálfu ári síðar var manni Helgu birt ákæra fyrir að valda henni tjóni. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Helgu til að fá sýslumann til að falla frá ákæru báru þær ekki árangur og féll dómur í málinu þann 15. apríl síðastliðinn og var maðurinn dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, sagðist ekki tjá sig um einstök mál, þegar Vísir hafði samband við hann. Hann benti þó á að málið hefði fengið sína meðferð og að dómur hafi gengið. „Það er aldrei auðvelt að taka ákvörðun um ákæru," segir Ólafur Helgi. „Hvert og eitt mál er metið en auk þess þarf að gæta að samræmi,"sagði hann og bætti því við að ákæra sé aldrei geðþóttaákvörðun sýslumanns. „Í þessu tilviki gerði ég ekki kröfu um ökuleyfissviptingu og ég ítreka að svona ákvörðun er ekki tekin nema að vandlega íhuguðu máli. Það verður fyrst og fremst að gæta að því að sambærileg máli fái sambærilega meðferð, það er kjarni málsins."
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Fleiri fréttir Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Sjá meira