Sportbíllinn á ofsahraða fyrr um kvöldið Breki Logason skrifar 2. maí 2008 10:42 Lögreglan elti manninn upp Hverfisgötu en hætti í öryggisskyni, skömmu síðar klessti guli sportbíllinn á steinvegg við Rauðarárstíg.
Ökumaður sportbílsins sem endaði á steinvegg við Rauðarárstíg um hálf tvö leytið í nótt hafði fyrr um kvöldið ekið á ofsahraða í miðbænum. Annar ökumaður varð vitni að akstrinum og tilkynnti til lögreglu. Vísir sagði frá ökuferðinni í morgun sem endaði á steinvegg við Rauðarárstíg. Lögregla elti bílinn, sem er gulur opinn sportbíll, eftir að hann hafði verið að reykspóla á Laugaveginum. Ökumaðurinn sinnti því ekki og ók á ofsahraða upp Hverfisgötuna og hætti lögregla eftirförinni í öryggisskyni. Skömmu síðar lenti bíllinn á steinveggnum. Þetta var um hálf tvö leytið í nótt. Annar ökumaður sem varð vitni að aksturslagi sportbílsins um 22:00 í gærkvöldi hafði samband við Vísi í kjölfar fréttarinnar nú í morgun. Segir hann tvennt hafa verið í bílnum sem keyrði á ofsahraða í miðbænum. Svo blöskraði honum aksturslagið að hann elti bílinn og tilkynnti til lögreglu. Hafði sportbíllinn þá svínað á ökumanninn og segir hann augljóst að ekki hafi verið í lagi með ökumanninn. Þegar lögregla náði honum eftir eltingarleikinn kom í ljós að hann var undir áhrifum áfengis. Stúlka sem var farþegi í bílnum var flutt á slysadeild vegna eymsla í baki. Ökumaðurinn gistir nú fangageymslur.
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Sjá meira