Innlent

Fyrirtæki gæti hófs og aðhalds við verðlagningu

Þór Sigfússon er formaður Samtaka atvinnulífsins.
Þór Sigfússon er formaður Samtaka atvinnulífsins. MYND/GVA

Stjórn Samtaka atvinnulífsins hvetur aðildarfyrirtæki samtakanna til þess að gæta hófs og aðhalds við verðlagningu í því umróti sem ríkir um þessar mundir. Ályktun þessa efnis var samþykkt á fyrsta stjórnarfundi nýrrar stjórnar SA.

Þar er einnig bent á að yfirvofandi sé samdráttur í eftirspurn í landinu og af því leiði að ekki verði unnt að velta öllum kostnaðarhækkunum áfram út í verðlag. Stjórn SA hefur enn fremur þungar áhyggjur af stöðu efnahagsmála. Vandi á fjármálamörkuðum, hátt vaxtastig, fyrirsjáanlegur samdráttur í umsvifum og atvinnu, vaxandi verðbólga erlendis, veik staða krónunnar og mikil verðbólga innanlands um þessar mundir vegna gengislækkunar séu þættir sem hafa gríðarleg áhrif á afkomu fyrirtækja og kjör launafólks.

Brýnt sé að allir aðilar sem áhrif hafa á framvinduna á næstu mánuðum og misserum, þ.e. ríkisstjórn, stjórnarandstaða, sveitarfélög og aðilar á almennum og opinberum vinnumarkaði, stilli saman strengi sína með það að markmiði að draga úr verðbólgu og koma í veg fyrir að háar verðbólguvæntingar festist í sessi.

„Hækkun heimsmarkaðsverðs á olíu og matvælum hefur rýrt kjör þjóðarinnar og á sama tíma þarf þjóðin að horfast í augu við að hátt gengi krónunnar undanfarin ár hélt uppi hærri kaupmætti en fékk staðist til langframa. Við núverandi aðstæður er yfirvofandi hætta á víxlverkandi hækkunum launa og verðlags og áframhaldandi veikingar gengis krónunnar sem allir tapa á. Þá atburðarás er hægt að koma í veg fyrir," segir einnig í tilkynningu Samtaka atvinnulífsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×