Fyrirtæki gæti hófs og aðhalds við verðlagningu 2. maí 2008 11:57 Þór Sigfússon er formaður Samtaka atvinnulífsins. MYND/GVA
Stjórn Samtaka atvinnulífsins hvetur aðildarfyrirtæki samtakanna til þess að gæta hófs og aðhalds við verðlagningu í því umróti sem ríkir um þessar mundir. Ályktun þessa efnis var samþykkt á fyrsta stjórnarfundi nýrrar stjórnar SA. Þar er einnig bent á að yfirvofandi sé samdráttur í eftirspurn í landinu og af því leiði að ekki verði unnt að velta öllum kostnaðarhækkunum áfram út í verðlag. Stjórn SA hefur enn fremur þungar áhyggjur af stöðu efnahagsmála. Vandi á fjármálamörkuðum, hátt vaxtastig, fyrirsjáanlegur samdráttur í umsvifum og atvinnu, vaxandi verðbólga erlendis, veik staða krónunnar og mikil verðbólga innanlands um þessar mundir vegna gengislækkunar séu þættir sem hafa gríðarleg áhrif á afkomu fyrirtækja og kjör launafólks. Brýnt sé að allir aðilar sem áhrif hafa á framvinduna á næstu mánuðum og misserum, þ.e. ríkisstjórn, stjórnarandstaða, sveitarfélög og aðilar á almennum og opinberum vinnumarkaði, stilli saman strengi sína með það að markmiði að draga úr verðbólgu og koma í veg fyrir að háar verðbólguvæntingar festist í sessi. „Hækkun heimsmarkaðsverðs á olíu og matvælum hefur rýrt kjör þjóðarinnar og á sama tíma þarf þjóðin að horfast í augu við að hátt gengi krónunnar undanfarin ár hélt uppi hærri kaupmætti en fékk staðist til langframa. Við núverandi aðstæður er yfirvofandi hætta á víxlverkandi hækkunum launa og verðlags og áframhaldandi veikingar gengis krónunnar sem allir tapa á. Þá atburðarás er hægt að koma í veg fyrir," segir einnig í tilkynningu Samtaka atvinnulífsins.
Mest lesið Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Innlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Ákæru fyrir manndráp vísað frá Erlent Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Innlent Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Innlent Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Erlent Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Erlent Fleiri fréttir „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Aldrei verið gefnar út fleiri rauðar viðvaranir Finnist hvergi eins sterk skilyrði til umhverfisverndar í lagareldi Streymi: Heilsan okkar: Meðferð offitu hjá fullorðnum Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Ráðhús Árborgar sprungið – 10 starfsmenn fluttir í annað húsnæði Streymi: Málþing um stöðu fatlaðra barna í íþróttum Lögregla eltist við afbrotamenn Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Auglýsa forskráningu í skóla í Grindavík Segir ekkert náttúrulögmál að bílasalar þurfi að velta hækkunum út í verðlagið Þrjár hlutu heiðursverðlaun Sjá meira