Illugi segir pólitíska framtíð sína ekki vera 11 milljarða virði 13. nóvember 2008 21:28 Illugi Gunnarsson þingmaður.
Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi stjórnarmaður í peningamarkaðssjóðum Glitnis, segir að það hafi verið stjórnendur gamla Glitnis sem tóku þá ákvörðun að kaupa bréf Stoða út úr sjóðunum. Þessi ákvörðun hafi verið tekin áður en neyðarlögin tóku gildi. Hún hafi því ekki verið tekin af forsætisráðherra eða fjármálaráðherra. "Ég er ágætur maður en efast um það að nokkur maður, hvorki eigendur bankanna né ríkið, sé tilbúinn til þess að eyða 11 þúsund milljónum í mig," sagði Illugi í Íslandi í dag. Illugi var þarna að svara fullyrðingum Sigurðar G. Guðjónssonar, fyrrverandi stjórnarmanns í Glitni, sem sagði í gær að ríkið hefði lagt peningamarkaðssjóðunum til ellefu milljarða króna eftir að þeim hafði verið lokað vegna þess að Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hafi setið í stjórn sjóðanna. Þá sagði Illugi að sú nefnd sem DV fullyrðir að sé að störfum og eigi að fjalla um nýjan stjórnarsáttmála ekki vera að fjalla um það heldur sé hópurinn að fara yfir aðgerðir vegna efnahagsvandans. Illugi neitar sögusögnum um yfirvofandi stjórnarslit og segir stjórnarsamstarfið vera með ágætum. Illugi sagði jafnframt að breytingar á stefnu Sjálfstæðisflokksins varðandi ESB verði ekki teknar nema á landsfundi flokksins.
Mest lesið Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Erlent Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Erlent Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Innlent Finna áhugann dvína á meðan vinir berjast og deyja á vígvellinum Innlent Enginn handtekinn eftir hópslagsmálin Innlent Gufunesmálið: „Þetta átti aldrei að fara svona“ Innlent Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Erlent Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Erlent „Það fer enginn lífvörður út í“ Innlent Fleiri fréttir Lögreglurannsókn á banaslysi í Brúará „svo til“ lokið Nauðsynlegt að fólk fái úrræði til að vernda sig frá djúpfölsunum Enginn handtekinn eftir hópslagsmálin Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Finna áhugann dvína á meðan vinir berjast og deyja á vígvellinum „Það fer enginn lífvörður út í“ Reyndi að kaupa glás af nammi og kom upp um tíu ára bankaræningja Gufunesmálið: „Þetta átti aldrei að fara svona“ Lygilegar tilraunir til að hafa áhrif á sakborning, Reynisfjara og tollar Trumps Olíuleit á teikniborðinu og býst við tíðindum í vetur Smokkamaðurinn enn ófundinn Sjúkrabíllinn bilaður og kemst ekki með sjúkling úr Þakgili Þrír á þaki jeppa á kafi í Jökulsá í Lóni Gefur sig fram fimmtíu árum eftir bankarán í Kópavogi Alvarlegt vinnuslys í Skagafirði Undirbúa steypuvinnu fyrir nýju Ölfusárbrúna Þungar áhyggjur af „síversnandi stöðu Íslands“ „Yfirgangur gyðingahataranna er algerlega óþolandi“ Af hættustigi á óvissustig vegna eldgoss Sálfræðingar rukka hátt í 26 þúsund krónur Tollar, höfundarréttur og þögn lögreglu í kynferðisbrotamálum Engin málaferli vegna slyss á Breiðamerkurjökli Tveir skjálftar um 3,3 að stærð Fundur hafinn í utanríkismálanefnd Mat á skólastarfi „algjört fúsk“: Eins og fyrirtæki sem „vona að þau endi ekki í blöðunum“ Ráðin nýr forstöðumaður Háskólaseturs Vestfjarða Íslendingur grunaður um heimilisofbeldi handtekinn í Grikklandi „Norska leiðin“ sé leið Sjálfstæðisflokksins Eigandi bíls fullur af bensínbrúsum handtekinn Tollarnir tilefni til hvorra tveggja örvæntingar og léttis Sjá meira