Fé til menntamála gæti minnkað 2009 21. desember 2008 08:00 Svo getur farið að um 1.630 manns til viðbótar berjist um laus sæti við þetta torg eftir áramót. En alls óvíst er hvort fleiri stólar verði keyptir til að mæta fjöldanum. fréttablaðið/stefán
Menntamálaráðherra segist hafa fullan skilning á þeim erfiðleikum sem Háskóli Íslands stendur frammi fyrir í ljósi þess að 1.630 nemendur bætast nú í hópinn, um leið og fjárframlög hafa verið minnkuð um tíu prósent frá því sem áætlað var. Rektor skólans hefur orðað það svo að skólinn sé í „verulega alvarlegri klemmu“. „Ég hef haldið þeim sjónarmiðum á lofti við ríkisstjórnarborðið að það eigi að hafa svigrúmið eins mikið og hægt er í þágu menntunar. En kröfurnar eru þess eðlis að við þurfum jafnvel að skera ennþá meira niður á næsta ári. Svigrúmið núna er jafnvel meira en það verður 2009,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Það sé hins vegar mikill misskilningur að framlög til HÍ hafi verið skorin niður um milljarð. Verið sé að fresta framlagi upp á 655 milljónir vegna rannsóknarsamnings við skólann. „Þetta er minna en miðað við fjárlagafrumvarpið 2009 en heildarframlög til menntamála eru samt 10 prósent meiri 2009 en 2008. Þannig að við erum að bremsa okkur af.“ Þorgerður kveður svigrúm háskólans hafa aukist mikið á síðustu árum. „En síðan verð ég að segja að miðað við þessa miklu aðsókn þurfum við að skoða þetta þegar komið er nýtt ár. En eins og staðan er núna eru ekki til fjárheimildir fyrir meiru.“ En hvernig á HÍ að bregðast við fleiri nemum á sama tíma og framlögum er frestað? „Háskólinn verður að gera það sem hann getur til að taka inn þessa nema, það er það sem við erum að vonast til í ljósi þess að fjárheimildir til hans hafa aukist mjög mikið á síðustu árum.“ Rektor HÍ sagði í blaðinu í gær að annaðhvort þurfi að segja nei við umsækjendur eða taka áhættu á að aukinn fjöldi bitni á gæðum námsins. Ekki komi til greina að minnka gæðakröfur. „Mér finnst það mjög skrítið ef þeir [í HÍ] ætla ekki að þjappa eins og aðrir. Sveitarfélögin eru líka að reyna að forgangsraða, til dæmis með því að fjölga í bekkjum,“ segir Þorgerður: „Þetta er mjög erfitt ástand, það er kreppa. En það koma inn, að mér skilst, milli annarrar og þriðju umræðu fjárlaga 212 milljónir, sem eru verðlagsuppfærslur þannig að það getur verið að þetta verði ekki eins sársaukafullt.“ Þetta hafi ekki komið fram við umræður á þinginu.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Fleiri fréttir SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Sjá meira