Innlent

Eldur í verkstæðisbyggingu á Árskógssandi

Maður brenndist á hendi þegar hann reyndi að slökkva eld, sem kviknaði í verkstæðisbyggingu á Árskógssandi við Eyjafjörð um níuleytið í gærkvöldi.

Hann var fluttur á sjúkrahúsið á Akureyri þar sem gert var að sárum hans. Slökkviliðið á Dalvík kom á vettvang og slökkti eldinn, en töluvert tjón varð á húsnæðinu og vélbúnaði í því. Eldsupptök eru ókunn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×