Kirkjur brenna í trúarbragðauppþotum á Indlandi 28. ágúst 2008 12:58 Börn bjarga eigum sínum úr farfuglaheimili sem eyðilagt var af hindúum. Mynd/AP
Uppþot á milli hindúa og kristna hafa verið að breiðast út á Austur-Indlandi. Hópur hindúa rændu og rupluðu kirkju og lentu saman við kristna í dag samkvæmt lögreglu þar í landi. Yfirvöld hafa átt í erfiðleikum að halda í skefjum sívaxandi ofbeldi vegna trúardeilna á þessu svæði Indlands. Hindúar hafa bæði eyðilagt meira en tíu kirkjur og ráðist á kristna í austurhluta Orissufylkisins á Indlandi eftir morð á leiðtoga Hindúa í Kandhamalhéraðinu í Orissu. Talið er að minnsta kosti ellefu manns hafi látist í þessum trúarbragðaóeirðum. Hvorki 3000 manna lögreglulið né útgöngubann hafa náð að halda óeirðunum í skefjum. Stjórnarskrá Indlands er ótengd trúarbrögðum að nafninu til en mikill meirihluti Indverja eru hindúatrúar. Aðeins 2,5 prósent íbúa eru kristnir en Kandhamalhéraðið sker sig mjög úr þar sem um 650 þúsund manns eða 20 prósent héraðsins eru kristnir. Flestir þeirra hafa snúist frá hindúisma til kristni. Telja hindúar það orsakast af því að prestar séu að múta lægri stéttum hindúasamfélagsins til þess að taka upp kristni. Kristnir segja hins vegar að lægri stéttir hindúasamfélagsins skipti um trúarbrögð til þess að komast úr hinu stífa stéttarsamfélagi hindúismans. Óeirðirnar hafa dregið að sér alþjóðlega athygli. Benedikt páfi hefur fordæmt ofbeldið gegn kristnum í Orissu en einnig harmað morðið á hindúaleiðtoganum. Friðargæslusveitir hafa verið sendar til þorpa í héraðinu í dag til þess að reyna að fá leiðtoga samfélaganna til að tala saman. Kristnir íbúar héraðsins segja hins vegar að árásirnar séu mun verri en yfirvöld vilja viðurkenna.
Mest lesið „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Innlent Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Innlent Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Innlent Tugþúsundir mótmæltu ICE Erlent Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Innlent Fleiri fréttir „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Trump kynnti friðarráðið Sýknaður af ásökunum um aðgerðaleysi þegar nítján börn dóu Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Var á ráðstefnunni í Davos: „Fólk andaði kannski aðeins léttar“ X fyllist af gríni um Ísland/Grænland Þessi hönd er um sjötíu þúsund ára gömul Verði að eignast þetta „stóra fallega stykki af ís“ Sjá meira