Ósammála Stefáni um að færa fjarskiptamiðstöðina 25. september 2008 08:53
Formenn svæðisdeilda Landssambands lögreglumanna utan höfuðborgarsvæðisins hafna þeim hugmyndum Stefáns Eiríkssonar, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, að fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra verði færð til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Í yfirlýsingu til fjölmiðla segja formennirnir að frá því að svokallað TETRA-fjarskiptakerfi hafi verið innleitt hafi fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra gegnt því hlutverki að vera samhæfingaraðili í aðgerðum lögreglu. Aðgengi að þjónustu og upplýsingum sé að hafa í gegnum fjarskipti við fjarskiptamiðstöðina í Skógarhlíðinni þar sem starfi menn sem eru sérhæfðir í miðlun upplýsinga úr upplýsingakerfum lögreglu. „Sú uppbygging sem verið hefur í þessum málum er á réttri leið og því væri það mikil afturför að fara í flutning á þessari starfsemi með þeim hætti sem Stefán sér fyrir sér.Sannarlega getur menn greint á um hvaða starfsemi eigi að vera í umsjá embættis ríkislögreglustjóra en þessi samhæfingarstarfsemi á heima þar, það er ekki spurning," segja formennirnir. Þjónusta fjarskiptamiðstöðvar við lögreglumenn á vettvangi sé nauðsynlegur þáttur í starfsemi embætta á landsbyggðinni hvað varðar aðgengi að upplýsingum úr lögreglukerfum sem sé lykilþáttur í skilvirkri löggæslu. „Við erum sannfærð um að starfsemi fjarskiptamiðstöðvar sem þjónustar allt landið á heima hjá embætti ríkislögreglustjóra og að þar verði haldið áfram á þeirri braut sem mörkuð hefur verið. Að þar starfi fagmenn sem miðla verkefnum og upplýsingum til samstarfsmanna sinna um land allt og samhæfa aðgerðir þegar þess þarf. Fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra, eins og hún er starfrækt í dag, er einn af lykilþáttum í þeirri þróun að efla lögregluna í heild og skapa þannig meira öryggi í samfélaginu," segir í yfirlýsingunni.
Mest lesið Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Innlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Einn þeirra handteknu sautján ára Innlent Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Innlent Fleiri fréttir Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Sjá meira