Koma daglega til þess að reyna að kveikja í 29. apríl 2008 10:54 Sviðin jörð blasir við nærri Hvaleyrarvatni eftir brunann í nótt. MYND/Lillý
Talið er að um fimm þúsund tré, allt upp í 15 ára gömul, hafi skemmst í brunanum á ræktunarsvæði Skógræktarfélags Hafnarfjarðar við Hvaleyrarvatn í nótt. Starfsmaður skógræktarinnar segir brennuvarga koma þar daglega til þess að reyna að kveikja í og ásetningur þeirra sé mikill. „Það er mikið sem hefur skemmst. Ég gæti trúað því að þetta væru um fimm þúsund tré sem eru allt upp í þriggja metta há sem hafa skemmst og þetta er líklega bruni á fjórum til fimm hekturum," segir Árni Þórólfsson, starfsmaður Skógræktarfélags Hafnarfjarðar, sem fór um svæðið í morgun eftir brunann. Fimmtán ára starf ónýtt Hann telur að trén muni flest drepast þar sem þau þoli illa þann mikla hita sem myndist þegar eldur logi í sinu fyrir neðan þau. Aðspurður segir hann erfitt að meta fjárhagslegt tjón Skógræktarfélagsins ,„ en miðað við vinnu og annað má áætla að þetta sé á bilinu fimm til tíu milljónir króna," segir Árni og bætir við: „Það má segja að fimmtán ára starf sé ónýtt." Aðspurður segir Árni þetta mikið reiðarslag fyrir skógræktarfélagið. „Það er líka þessi nagandi ótti að geta aldrei verið öruggur með neitt. Við og lögreglan höfum verið að reyna að vakta svæðið en það er kveikt í á hverjum einasta degi og stundum mörgum sinnum á dag. Þeir eru bara í þessu til þess að valda tjóni," Árni og bendir á að eldurinn hafi komið upp í nótt um hálftíma eftir að lögregla ók um svæðið. „Maður veltir fyrir sér hvort þeir fylgist með lögreglunni," Árni. Á ferð með úðabrúsa sem eldvörpur? Árni segir að út frá skoðun á íkveikjustöðum sé talið að kveikt sé í á nokkrum stöðum í hvert skipti. Brennuvargarnir noti einhverja aðferð og slökkvilið telji hugsalegt að þeir séu með kyndla eða úðabrúsa sem þeir noti sem eldvörpur. Þrír menn rétt undir tvítugu voru handteknir í nótt í grennd við Hvaleyrarvatn vegna gruns um að hafa kveikt þar í í nótt. Aðspurður hvort Skógræktarfélag Hafnarfjarðar muni leita réttar síns gagnvart þeim játi þeir á sig íkveikju segir Árni að að hann reikni með því. Hann bendir þó á að sönnunarbyrði í málum sem þessum sé mikil.
Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Innlent Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Innlent Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Erlent Fleiri fréttir Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Sjá meira