Innlent

Sátt í læknadeilu á Blönduósi

Frá Blönduósi.
Frá Blönduósi. MYND/Pjetur

Samkomulag hefur náðst í deilu heilbrigðisstofunarinnar á Blönduósi og lækna sem þar starfa en höfðu sagt upp störfum. Fram kemur í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu að læknarnir hefðu sagt upp störfum sínum frá 1. apríl en féllust á að fresta uppsögn sinni til 1. maí.

Heilbrigðisráðherra og heilbrigðisráðuneytið tóku að sér að freista þess að miðla málum í deilunni. Ráðherra og ráðuneytið hafa verið í sambandi við deiluaðila og embættismenn hafa unnið að lausn deilunnar undanfarnar vikur og nú um helgina tókst svo sátt í málinu.

Þetta þýðir að ekki verða breytingar á læknisþjónustunni sem Húnvetningum hefur staðið til boða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×