Stjórnlaus þjóðarskúta og strútar í ríkisstjórn 29. apríl 2008 14:00 Bjarni Harðarson var upphafsmaður umræðunnar um efnahagsmálin. MYND/GVA
Stjórnarandstaðan gagnrýndi harðlega ríkisstjórnarflokkanna fyrir aðgerðaleysi í efnahagsmálum í þeirri miklu verðbólgu sem nú er hér á landi. Var þjóðarskútan sögð stjórnlaus og ríkisstjórninni líkt við strúta sem styngju höfðinu í sandinn. Bjarni Harðarson, þingmaður Framsóknarflokksins, kvaddi sér hljóðs undir liðnum störf þingsins vegna grafalvarlegrar stöðu í efnahagsmálum eins og hann orðaði það. Þjóðin biði eftir því að eitthvað yrði gert og mjór væri mikils vísir en sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar að leggja til fjórar milljónir til þess að berjast gegn verðbólgunni bæri vott um undarlegt skopskyn. Vísaði hann þar til fjármuna sem verja á til verðlagseftirlits. „Er ríkisstjórnin að gera at í efnhagsástandin," spurði Bjarni og sagði Íslendinga stefna inn í ástand sem yrði verr og verra. Sagði hann stjórnarandstöðuna lagt fram ýmsar tillögur, þar á meðal þjóðarsátt, til þess að stemma stigu við verðbólgunni. Þá ættu Íslendingar sterkan ríkissjóð en það þyrfti að nota hann. Spurði Bjarni hvort eining væri um aðgerðaleysið hjá ríkisstjórnarflokkunum. Mikill kaupmáttur, lítið verðskyn og skortur á samkeppni Kristján Þór Júlíusson, varaformaður fjárlaganefndar og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að allir deildu áhyggjum af efnahagsmálum. Benti hann á að erlendur gjaldeyrir hefði hækkað um fjórðung frá áramótum og það hefði farið út í verðlagið. Eftir góðæri síðustu ára væru þrjú heimatilbúin vandræði. Það væru mikill kaupmáttur, lítið verðskyn og skortur á samkeppni. Það myndi slá á einkaneyslu á næstunni og taka yrði tillit til breytinganna við endurskoðun fjárlaga. Ekki hefði verið talin ástæða til endurskoðunar á fjárlögunum eftir fyrstu þrjá mánuði ársins en breytingar hefðu orðið síðan þá og fjárlaganefnd myndi fara yfir málið á næstunni. Brýnasta verkefnið að koma ríkisstjórninni til veruleikans Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri - grænna, sagði að fjárlaganefnd yrði að taka upp fjárlögin og endurskoða miðað við aðstæðurnar nú. Það skipti miklu máli að vinna að trúverðugleika. Benti hann á að í fyrra hefði verið spáð 3,3 prósenta verðbólgu á þessu ári. Í janúar hefði þessi tala breyst í 4,4 prósent og í 8,4 prósent í apríl. Verðbólga væri nú 11,8 prósent. Grundvallarforsendur fjárlaga væru brostnar út frá þessu og það sýndi einnig spá fjármálaráðuneytisins um þróun á gengi krónunnar. Brýnasta vandamálið væri að koma ríkisstjórninni til veruleikans til þess að takast á við ástandið. Kristinn H. Gunnarsson, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, benti á að ríkisstjórnin hefði setið í 11 mánuði en staðan væri þannig að verðbólga hefði ekki verið hærri í 18 ár. Mestur hluti hennar væri kominn til á síðustu þremur mánuðum og nú væru komin þau vatnaskil að ábyrgðin á ástandinu væri komin á herðar ríkisstjórnarinnar. Ný ríkisstjórn hefði átt að koma í framkvæmd nýrri stefnu og ef hún hefði slíka stefnu þá væri verðbólgan ekki svo mikil. Ríkisstjórnin flatræki undan vindinum og enginn skiptstjóri væri á þjóðarskútunni og áhöfnina vantaði líka. Forsendur fjárlaga algerlega brostnar Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, sagði söguskýringur Kristjáns Þórs um þrjú heimatilbúin vandamál skrýtna. Hið rétta væri að vandinn væri vanmáttug ríkisstjórn. Hluta af ástandinu mætti rekja til ytri aðstæðna en meirihlutinn væri vegna framtaksleysis ríkisstjórnarinnar. Vísaði hún til þess að Kristinn H. Gunnarsson hefði talað um skútu án skipstjóra en eins mætti tala um strúta sem styngju höfðinu í sandinn. Þannig væri farið með ríkisstjórnina. Sagði hún fólk ekkert vita hvað ríkisstjórnin ætlaði að gera en hún teldi að gera ætti eins og Seðlabankinn hefði lagt til í svari við spurningum framsóknarmanna, að fara yfir forsendur fjárlaga því þær væru algerlega brostnar. Þjóðarátak þarf gegn sjálfvirkum verðhækkunum Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði stjórnarandstöðun hafa gert gys að fjögurra milljóna króna framlagi ríkisstjórnarinnar. Það væri lágt en undirstrikaði ákveðinn vilja. Það þyrfti að gera þjóðarátak til þess að vinna gegn sjálfvirkum verðhækkunum sem farnar væru í gegn. Vandinn væri gríðarlega alvarlegur og nú þyrftu fyrirtækin að leggjast á árarnar með ASÍ og binda enda á þetta. Ríkisstjórnin myndi að sjálfsögðu taka þátt í þeirri vegferð. Þá sagði Árni Páll menn geta þakkað fyrir að eina blessun, að hafa ekki framsóknarmenn í ríkisstjórn. Þeir hefðu lagt til þrjú álver og vaxtalækkun til þess að takast á við ástandið. Hvernig menn myndu keyra skynsamlega efnahagsstefnu með þeim hætti væri hulin ráðgáta. Það væri gott að hafa ekki slíkan brennuvarg í slökkviliðinu. Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknfarflokksins, benti á 20 prósenta útgjaldaaukingu ríkisstjórnarinnar á milli áranna 2007 og 2008. Ríkisstjórnin hefði slegið tóninn með því og því væri ábyrgðarlaust að kenna fyrirtækjum og fólkinu í landinu um það hvernig komið væri. Ríkisstjórnin væri gjörsamlega stikkfrí en staðreyndin væri sú að hún bæri ábyrgð á undirliggjandi óstöðugleika.
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Sjá meira