Vonast til að verðtrygginganefnd skili niðurstöðum í næsta mánuði 31. október 2008 12:41
Vinnuhópur sem félagsmálaráðherra skipaði til þess að finna lausnir fyrir þá sem eru með verðtryggð lán skilar að öllum líkindum ekki niðurstöðum fyrr en um miðjan næsta mánuð. Vandasamt verk segir félagsmálaráðherra. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra kynnti vinnuhópinn til leiks á ársfundi ASÍ fyrri skömmu. Hópnum er falið að leita leiða til að koma til móts við þá íslendinga sem eru með verðtryggð lán á sínum herðum. Sá hópur tekur nú á sig mikinn skell með hækkandi verðbólgu. Jóhanna segir að nefnd á vegum ráðuneytisins sé að störfum og hún hittist daglega til að skoða lausnir á málinu. „Ég vonast til þess að hún skili fljótlega en hver niðurstaðan verður veit ég ekki vegna þess að þettar er mjög vandasamt mál að taka á," segir Jóhanna. Yfirvöld hafa þegar farið þess á leit við fjármálastofnanira að þeir sem skulda svokölluð myntkörfulán geti fryst þau en lítið hefur bólað á úrræðum fyrir alla hina. Að minnsta kosti er frysting verðtryggðra lána ekki í boði. Jóhanna leggur áherslu a að fólk sem geti borgað af lánum sínum geri það. Ráðherra bendir hins vegar á að ýmis úrræði séu í boði fyrir þá sem ekki geta staðið í skilum. En eiga þeir sem skulda í íslenskum krónum ekki að sitja við sama borð og þeir sem skulda í erlendum myntum? „Auðvitað er hægt að segja það sem slíkt en þetta er bara ekki einfalt. Það eru náttúrlega lánardrottnar þarna á móti, í verðtryggingunni. Hverjir eiga þessi lán? Þetta eru mikið lífeyrissjóðirnir svo ég nefni sem dæmi. En við erum að skoða allar leiðir í þessu efni. Það er eina sem ég get sagt við fólk á þessari stundu. Þetta er mjög vandmeðfarið og menn eru bara að velta hverjum steini," segir Jóhanna. Aðspurð vonast hún til að nefndin skili niðurstöðu um miðjan næsta mánuð.
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Erlent Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Innlent Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Erlent Fleiri fréttir Útför Björgvins Halldórssonar Aðalmeðferð hafin í Múlaborgarmáli Bein útsending: Húsnæðismál í aðdraganda kosninga Sumarbúðir fatlaðra barna í húsi sem sé úr sér gengið Vongóður um að fundur með Apple skili árangri Hvenær slítur maður viðræðum og hvenær slítur maður þeim ekki? Stórfelld líkamsárás og aðstoð mistúlkuð sem innbrot „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Sjá meira