Vöruskiptahalli tvöfalt meiri á fyrsta ársfjórðungi í ár en í fyrra 30. apríl 2008 09:11 Aukning hefur orðið á útflutningi á áli. MYND/GVA
Vöruskiptahallinn á fyrsta ársfjórðungi reyndist nærri 25 milljarðar króna samkvæmt tölum sem Hagstofa Íslands hefur tekið saman. Fluttar voru út vörur fyrir um 78 milljarða króna fyrstu þrjá mánuði ársins en inn fyrir tæpa 103. Vöruskiptin voru óhagstæð um 12,3 milljarða á sama tíma í fyrra og vöruskiptahallinn því um helmingi minni þá en í ár. Þegar aðeins er litið til mars í ár reyndist vöruskiptahallinn tæpir þrír milljarðar sem þýðir að eitthvað er að draga úr hallanum miðað við janúar og febrúar. Til samanburðar var vöruskiptahallinn fjórir milljarðar í mars í fyrra. Fyrstu þrjá mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruútflutnings 10,1 milljarði eða 11,4 prósentum minna en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 41 prósent alls útflutnings og var verðmæti þeirra um 15 prósentum minna en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru nær helmingur alls útflutnings og var verðmæti þeirra nærri 12 prósentum meira en árið áður. Mestur samdráttur varð í útflutningi skipa og flugvéla og sjávarafurða, aðallega frystra flaka en á móti kom aukning í útflutningi á áli. Þegar litið er til innflutnings fyrstu þrjá mánuði ársins var verðmæti hans 2,4 milljörðum eða 2,4 prósentum meira en á sama tíma í fyrra. Mest aukning varð í innflutningi á fólksbílum og hrá- og rekstrarvörum en á móti kom samdráttur í innflutningi á flugvélum og fjárfestingavöru.
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Sjá meira