Flokksfélagar Browns hvetja hann til þess að segja af sér 26. júlí 2008 19:12
Útlit er fyrir að verulega sé farið að síga á síðari hlutann í forsætisráðherratíð Gordons Brown því nú eru bæði þingmenn hans og ráðherrar farnir að hvetja hann til að segja af sér - eða jafnvel að setja hann af. Þessar umræður fengu byr undir báða vængi í gær eftir að Verkamannaflokkurinn tapaði þingsæti í Glasgow - þingsæti sem hann hefur haldið allt frá stofnun. Nær öll bresku blöðin birta í dag forsíðufréttir þar sem vitnað er í ónefnda ráðherra sem segja að þeir séu undir miklum þrýstingi almennra þingmanna um að sparka Brown. Vinsældir Browns hafa dvínað jafnt og þétt síðan hann tók við embætti af Tony Blair í júní í fyrra. Nú sýna nýjustu skoðanakannanir að Verkamannaflokkurinn hafi aðeins fjórðungs fylgi meðal kjósenda á meðan Íhaldsmenn hafa 46% fylgi. Þingkosningar í Bretlandi þarf að halda eigi síðar en 2010. Ráðherrar í stjórn Browns munu almennt vera andvígir því að sparka honum nú þegar - en sumir þeirra segja að útlit sé fyrir að lagt verði að honum að víkja fyrir landsfund Verkamannaflokksins sem hefst 20. september. Og þeim virðist bera saman um að niðurlægingin í Glasgow fyrir helgina hafi verið kornið sem fyllti mælinn. Stemningin er að breytast, hafði blaðið Independent eftir ónefndum ráðherra. Andstaðan er að harðna. Líklegasti eftirmaður Browns er í augnablikinu talinn vera utanríkisráðherrann, David Miliband, sem er ungur og myndarlegur og kemur vel fyrir í fjölmiðlum.
Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Hópslysaáætlun virkjuð vegna áreksturs Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Fleiri fréttir Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Sjá meira