Íslensk stjórnvöld auka framlag til matvælaáætlunar SÞ 29. apríl 2008 18:27
Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið aukaframlag til matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) sem nemur um hálfri milljón Bandaríkjadala, eða um 37 milljónum íslenskra króna, í kjölfar neyðarkalls stofnunarinnar. Á matvælaáætlun SÞ í alvarlegum fjárhagserfiðleikum vegna gífurlegra hækkana sem orðið hafa á matvæla- og eldsneytisverði að undanförnu. Hlutverk stofnunarinnar er að seðja hungur þeirra sem minnst mega sín í heiminum og bregðast við neyðarástandi sem skapast í kjölfar flóða, þurrka, styrjalda eða annarra hörmunga. Sem stendur sinnir Matvælaáætlunin neyðaraðstoð í yfir 80 ríkjum og fæðir um 70 milljónir manna, þar af um þrjár milljónir í Darfur-héraði í Súdan. Stofnunin hefur gripið til aðgerða til að mæta hækkandi matar- og eldsneytisverði og kaupir nú matvæli í auknum mæli nærri hamfarasvæðum til að spara flutningskostnað og styðja bændur á svæðinu. Engu að síður hefur hallareksturinn aukist og útgjöld vegna matvælakaupa stofnunarinnar hafa hækkað um 55% frá júní 2007 til febrúar 2008. Samkvæmt verkefnaskrá utanríkisráðuneytisins árið 2008 var gert ráð fyrir 300.000 Bandaríkjadölum í neyðaraðstoð á vegum Matvælaáætlunar SÞ, sem hugsað er til að bregðast við þeim fjölda beiðna sem berast árlega. Er aukaframlagið til viðbótar þeirri aðstoð. Þá bendir flest til þess að vandi tengdur hækkandi matarverði haldi áfram, og mun ráðuneytið því gera ráð fyrir auknum framlögum til stofnunarinnar á næsta ári. Þetta segir í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Sjá meira