Býst við að mannekla leikskóla leysist á næstu vikum 21. október 2008 13:00 Ragnhildur Erla Bjarnadóttir.
Sviðsstjóri leikskólasviðs borgarinnar á von á því að allir leikskólar verði fullmannaðir á næstu vikum og þá verði hægt að fylla þau pláss sem ekki hefur verið hægt að fylla. Umsókn um störf á leikskólunum hefur fjölgað mjög á síðustu vikum. Á fundi leikskólaráðs í síðustu viku var greint frá stöðu mála á leikskólum borgarinnar og bókaði ráðið að gleðilegt væri að staða í starfsmannamálum væri nú betri en undanfarin misseri. Mikið bærist af umsóknum til leikskólasviðs og meðal umsækjenda væri fólk með fjölbreytta menntun og reynslu. Ragnhildur Erla Bjarnadóttir, sviðsstjóri leikskóalsviðs, segir að um síðustu mánaðamót hafi vantað um 70 starfsmenn á leikskólana, 60 inn á deildir og tíu í önnur störf. Í síðustu viku hefði staðan svo verið sú að 40 starfsmenn vantaði inn á deildinar. „Við erum að fá góðar umsóknir frá vel menntuðu og reynslumiklu fólki," segir Ragnhildur. Hún segir meðal annars á ferðinni uppeldismenntað fólk og fólk með tónlistar- og myndlistarmenntun. Ráðningarferli borgarinnar er um hálfur mánuður. „Við horfum nokkuð jákvæð fram á veginn og vonumst til að geta fullmannað leikskóla og tekið inn í öll þau pláss sem eru í boði hjá leikskólum borgarinnar," segir Ragnhildur en um 160 pláss eru laus á leikskólunum. Aðspurð telur Ragnhildur ekki ólíklegt að fjölgun umsókna um störf á leikskólum megi rekja til breyttra efnahagsaðstæðna í landinu. Hún bendir þó á að síðustu ár hafi alltaf vantað flest fólk í upphafi septembermánaðar en að starfsmannaeklan hafi minnkað þegar liðið hafi á haustið. „Núna gerist þetta hraðar en við höfum séð undanfarin ár og staðan varðandi ráðningar er mun betri en undanfarin þrjú ár," segir Ragnhildur enn fremur.
Mest lesið Siggi stormur sár en dregur ekki í land Innlent Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Innlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Erlent Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Innlent Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Erlent Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Innlent Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Innlent Greinir á við kjósendur sína Innlent Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Sjá meira