Erlent

Kgalema Motlanthe næsti forseti S-Afríku

Kgalema Motlanthe og Jacob Zuma á blaðamannafundi fyrr í dag.
Kgalema Motlanthe og Jacob Zuma á blaðamannafundi fyrr í dag. MYND/AFP

Afríska þjóðarráðið sem er helsti stjórnmálaflokkur Suður-Afríku hefur ákveðið að Kgalema Motlanthe, varaformaður flokksins, taki við sem forseti landsins fram yfir þingkosningarnar í byrjun næsta árs.

Thabo Mbeki sagði af sér forsetaembættinu í gær en vikuna á undan hafði verið deilt hart á hann og þrýst á afsögn í kjölfar þess að dómari vísaði frá spillingamáli sem var höfðað gegn Jacob Zuma, forseta Afríska þjóðarráðsins. Mbeki hafni ítrekað ásökunum.

Mbeki er sagður hafa beitt pólitískum áhrifum sínum svo Zuma yrði lögsóttur. Mbeki hefur ítrekað hafnað ásökunum. Zuma fór með sigur af hólmi í forsetakjöri Afríska þjóðarráðsins á síðasta ári en hann keppti um embættið við Mbeki.

Á sama tíma var Motlanthe kjörinn varaformaður flokksins. Motlanthe hefur einungis verið þingmaður í nokkra mánuði. Á 9. áratug seinustu aldar eyddi hann mest af tíma sínum í fangelsinu á Robben Island rétt eins og Nelseon Mandela, fyrrverandi forseti Suður-Afríku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×