Ætluðu að smygla umtalsverðu þýfi úr landi 7. febrúar 2008 15:45 Þýfið sem fannst á Keflavíkurflugvelli MYND/Lögreglan
Fimm karlmenn af erlendu bergi brotnir voru handteknir eftir að lögregla kom upp um umfangsmikið smygl á þýfi úr landi. Í frétt lögreglunnar kemur fram að rannsóknarlögreglumenn frá svæðisstöðinni í Hafnarfirði hafi farið í húsleit á mánudagskvöld eftir að hafa fengið áreiðanlegar heimildir um grunsamlega menn og vafasamt hátterni þeirra. Í herbergi í húsinu fundust tveir kassar en í þeim var varningur sem öruggt má telja að sé þýfi. Á sama stað fannst einnig mjög mikið af allskyns verð- og merkimiðum sem var búið að fjarlægja af fatnaði. Tveir karlar deildu herberginu og voru þeir báðir handteknir. Aðspurðir um innihald kassanna voru þeir margsaga en skýringar þeirra þóttu lítt trúverðugar. Í herberginu var einnig að finna pappíra sem höfðu að geyma upplýsingar um póstsendingu til útlanda. Strax var haft samband við bæði póst- og tollayfirvöld en við eftirgrennslan kom í ljós að tólf sams konar kassar voru á Keflavíkurflugvelli og biðu þess að vera fluttir um borð í flugvél en brottför hennar var morguninn eftir. Lagt var hald á póstsendinguna en samtals vega kassarnir fjórtán, sem lögreglan fann á þessum tveimur stöðum, vel á annað hundrað kíló. Varningurinn saman stendur af fatnaði og snyrtivörum. Fatnaðurinn er talinn vera úr innbroti í verslun í Hafnarfirði en snyrtivörunum var að öllum líkindum stolið úr verslun í Reykjavík. Þrír aðrir karlar voru handteknir vegna rannsóknar málsins en þeir, líkt og hinir tveir, eru af erlendu bergi brotnir. Fjórir þessara manna hafa áður komið við sögu hjá lögreglu.
Mest lesið Ísland verður ekki með í Eurovision Innlent Gummi Emil tekinn í skýrslutöku lögreglu Innlent „Við munum berjast fyrir því til síðasta dags að fá pabba aftur“ Innlent Sæði með krabbameinsvaldandi genagalla selt til Íslands Innlent Krafðist sérlega þungrar refsingar yfir Margréti Höllu Innlent Gunnar lögmaður: „Ég er rosalega vinsæll á meðal Albananna“ Innlent Ungur karlmaður lést í slysinu á Vesturlandsvegi Innlent Sauð upp úr við athugasemd um að vændiskonan væri karl Innlent Krúttlegi jólamarkaðurinn í félagsheimilinu endaði á borði lögreglu Innlent Komust yfir myndband af slysinu Innlent Fleiri fréttir „Þá sýndu stjórnvöld kjark“ Fjögur börn á Íslandi getin með sæði mannsins Útvarp Sólheimar er vinsæl útvarpsstöð Landsmenn sáttir: „Þetta eru bara glæpahundar“ Varar Íslendinga við værukærð eftir að „Pólverjar lögleiddu pyntingar“ Breiðholtsbrautin opin á ný Áfram gert ráð fyrir gosi þrátt fyrir litla skjálftavirkni Reyndu að kveikja eld í bílastæðahúsi Ekkert Eurovision og hreindýr sem heldur að það sé hundur Til skoðunar hvort ljósin hafi verið græn Ósáttur með ákvörðunina: „Mér finnst Rúv verða aðeins leiðinlegra fyrir vikið“ Maðurinn handtekinn aftur í tengslum við mannslátið Milduðu dóm konu sem braut á drengjum og einn vildi ekki refsa Ísland meðal ríkja sem vilja endurskoða túlkun Mannréttindasáttmálans Ísland verður ekki með í Eurovision Selfoss dreginn til hafnar á Hjaltlandseyjum Reiknar með fljótri og góðri ákvörðun fyrir Ísland Óska eftir vitnum að banaslysinu á Vesturlandsvegi Kalla eftir sérstakri umræðu um málefni skólameistara og framhaldsskóla Tölvuárás á kerfi Grundarheimilanna Úlfar þögull sem gröfin Vörubifreið ekið á undirstöður Breiðholtsbrúar Starfsmenn stefna Hval í samvinnu við fyrirtækið Viðgerð á Seyðisfjarðarlínunni muni taka tíma Hvalveiðimenn ætla í hart og örlög Íslands í Eurovision ráðast í dag Róbert vill leiða lista Viðreisnar í borginni Miðflokkurinn ekki undirritað siðareglur og mæting þingmanna sögð frjálsleg Handtekinn á Akranesi grunaður um nauðgun Slökkviliðsstjóri fer í fullt starf hjá almannavarnanefnd Fer ekki aftur fram fyrir Samfylkinguna Sjá meira