Ósammála um hvort nýtt mál sé að ræða 20. desember 2008 03:00 Gestur Jónsson (til vinstri) verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, segir saksóknara í málinu vanhæfan þar sem hann hafi meðal annars leitt húsleit í höfuðstöðvum Baugs Group árið 2002.Fréttablaðið/GVA
Rannsóknin á skattamálum Baugsmálsins brýtur gegn reglum um hæfilegan málshraða, auk þess sem þegar hafa verið gefnar út tvær ákærur í málinu, segir Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar. Verjandi Jóns Ásgeirs krafðist þess í byrjun nóvember að rannsókn málsins yrði dæmd ólögmæt. Það sama gerðu verjendur Kristínar Jóhannesdóttur og Stefáns Hilmarssonar. Krafa verjanda Stefáns var felld niður þar sem í ljós kom að hann var ekki ákærður í málinu. Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Gestur segir ákæruvaldið fallið á tíma í málinu, sem hófst með húsleit í höfuðstöðvum Baugs Group 28. ágúst 2002. Augljóslega er um þriðju ákæruna í sama málinu að ræða, segir Gestur. Rannsókn á meintum skattalagabrotum hafi klárlega hafist á sama tíma og rannsókn á öðrum hlutum Baugsmálsins. Gögn úr húsleitinni árið 2002 séu til að mynda notuð í öllum hlutum málsins. Gestur vísar einnig í dóm Hæstaréttar þar sem Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri var dæmdur vanhæfur. Þar komi skýrt fram að mál sem rekja megi til húsleitarinnar, og rannsökuð voru sem eitt mál í byrjun, teljist enn sama málið. Gestur gerir einnig athugasemdir við hæfi Helga Magnúsar Gunnarssonar, saksóknara efnahagsbrota hjá Ríkislögreglustjóra, til að sækja málið. Vísar Gestur til þess að Helgi Magnús hafi á sínum tíma verið virkur í rannsókn á Baugsmálinu. Hann hafi stjórnað húsleitinni hjá Baugi, og verið vitni ákæruvaldsins. Jón Ásgeir, Kristín og fleiri voru ákærð í hinu upphaflega Baugsmáli sumarið 2005. Þeim ákærum var vísað frá dómi, en Jón Ásgeir var endurákærður ásamt fleirum. „Það er ekki verið að ákæra fyrir sömu sakargiftirnar aftur,“ segir Helgi Magnús. Hann segir málið fráleitt það sama og þegar hefur verið ákært og dæmt í. Rétt sé að rannsóknin eigi að hluta sömu rætur, og að sömu sakborningar séu í málunum. Þó sé málið augljóslega ekki það sama, enda aðrar sakargiftir og önnur málsatvik. Helgi hafnar því alfarið að hann sé vanhæfur til að sækja málið, eins og Gestur heldur fram. Það sé dómara í málinu að taka afstöðu til þessarar kröfu. Dómari ákvað í gær að málflutningur um kröfu verjanda Jóns Ásgeirs verði flutt 8. janúar, og 12. janúar verði fjallað um kröfur verjanda Kristínar. Þingfesta á ákæru á hendur þeim og fleirum 20. janúar. brjann@frettabladid.is
Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent Fleiri fréttir Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Sjá meira