Harmar rasistatal í tengslum við bílslys 12. mars 2008 10:42 Foreldrar Kristins Veigars biðluðu til almennings í Kompássþætti í gær. Mynd/ Kompás
Anna Guðbjörg Kristinsdóttir, móðir Kristins Veigars Sigurðssonar, sem lést í hörmulegu bílslysi skömmu fyrir síðustu jól, segir það vera agalega sorglegt hvað fólk sé fljótt að snúa umræðu um málið upp í rasistatal. Í Kompási í gær biðluðu foreldrar Kristins Veigars til almennings um ábendingar sem gætu gagnast við að upplýsa um hver hefði ekið bifreiðinni á drenginn. Anna Guðbjörg vísar meðal annars í umræðu sem átti sér stað í símatíma í þættinum „Í bítið á Bylgjunni" í morgun. „Fólk er að segja að lausnin sé að senda alla heim, en það er aldrei nein lausn," segir Anna. Hún segir það mjög leiðinlegt að allir séu settir undir einn hatt. „Börnin mín eru með Pólverjum í bekk í skólanum og það er allt yndislegt fólk," segir Anna. Anna Guðbjörg segist hafa fengið að sjá þáttinn áður en hann fór í loftið en hún hafi ekki treyst sér til að horfa á hann í gærkvöld. „Þetta var rosalega erfitt, en ég var rosa ánægð með það hvernig hann var unninn. Það kom allt þarna fram sem ég vildi að kæmi fram," segir Anna. Jóhannes Jensson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunnar á Suðurnesjum, segir að lögreglunni hafi borist hringingar og tölvuskeyti með ábendingum eftir að þátturinn var sýndur í gær. Hins vegar hafi ekkert nýtt komið fram í þeim ábendingum.
Mest lesið Óákveðin hvort hún fari aftur fram fyrir Sósíalista: „Mér finnst þetta bara orðið bull“ Innlent Hitamet slegið á Spáni um helgina Erlent Tugir missa vinnuna í sumar Innlent Þúsundir Norðmanna fengu fyrir mistök tilkynningu um að hafa unnið milljónir Erlent Hringsund um Ísland skapi verðmæta þekkingu Innlent Ekkert samkomulag í höfn enn um þinglok Innlent Segir ráðherra sjálfum í lófa lagið að breyta leikreglum svo ágóðinn rati vestur Innlent Árásarmaðurinn ölvaður Íslendingur Innlent Rektorar allra íslenskra háskóla lýsa yfir miklum áhyggjum Innlent Segir gömlu samræmdu prófin ekki hafa mælt það sem þurfti Innlent Fleiri fréttir Ekkert samkomulag í höfn enn um þinglok Hringsund um Ísland skapi verðmæta þekkingu Óákveðin hvort hún fari aftur fram fyrir Sósíalista: „Mér finnst þetta bara orðið bull“ Tugir missa vinnuna í sumar Segir ráðherra sjálfum í lófa lagið að breyta leikreglum svo ágóðinn rati vestur Segir gömlu samræmdu prófin ekki hafa mælt það sem þurfti Múmínlundurinn verður Ævintýraskógur á meðan leyst er úr höfundarrétti Störf á landsbyggðinni, skortur á sérfræðiþekkingu kennara og óperugala Sektaður fyrir að vera á 101 kílómetra hraða í 101 Rektorar allra íslenskra háskóla lýsa yfir miklum áhyggjum Ekki gagnlegt að stilla fyrirtækjum upp gegn starfsfólki Krefst aðkomu Vinstri grænna að endurmótun varnarmálastefnu Skýrslutökum írsku lögreglunnar lokið Veðurstofan nýtir ofurtölvu til að herma eftir hraunflæði „Samfélagsleg ábyrgð þessa fyrirtækis virðist ekki vera nein“ Óhress innviðaráðherra, öryggis- og varnarmál og ofurtölva Árásarmaðurinn ölvaður Íslendingur Ný kirkjuhandbók og kaldar kveðjur til ferðaþjónustunnar Ráðist á rútubílstjóra og vegfarendur yfirbuguðu árásarmanninn „Langflestir Grindvíkingar búa utan Grindavíkurbæjar“ Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Ráðherra vill tryggja betra eftirlit með Sjúkratryggingum Íslands Segir tölurnar sláandi og vill bregðast við „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Sósíalistar deila um peninga og metþátttaka í ólöglegri baráttugöngu Kostnaður vegna kynja- og jafnréttismála sextán milljónir Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Sjá meira