Ökumenn hundrað bíla aðstoðaðir í morgun 7. febrúar 2008 10:10 Mikil ófærð er nú víða á suðvesturhorninu. Mynd/ Stöð 2
Á Suðurnesjum er unnið að því að losa bíla á Sandgerðisheiði, Garðvegi, við Vogaafleggjara, á leiðinni til Hafna og víðar. Færð hefur verið afar slæm en er eitthvað að lagast en bílar sitja fastir þvers og kruss innanbæjar, í öllum hliðargötum. Allt tiltækt lið björgunarsveitanna er nú úti og hafa aðstoðað ökumenn um 100 bíla í morgun. Félagar úr 4x4 klúbbnum á Reykjanesi hafa einnig aðstoðað samborgara sína í morgun, samkvæmt fréttatilkynningu frá Landsbjörgu. Fyrir austan fjall hafa björgunarsveitir haft í nógu að snúast en búið er að loka Hellisheiði og Þrengslum. Björgunarsveitir eru búnar að koma nær öllum bílum af heiðinni en í Þrengslum situr enn mikið af fólki fast í bílum sínum og unnið er að því að koma því til byggða. Búist er við að því verki ljúki um hádegisbil en björgunarsveitir af höfuðborgarsvæðinu hafa verið kallaðar út til aðstoðar á svæðinu. Þrátt fyrir að Hellisheiði hafi verið lokað ákváðu nokkrir ökumenn að leggja á heiðina og sitja þeir nú fastir í Kömbunum. Ekkert ferðaveður er á Suðurlandi að sögn björgunarsveitamanna, mikill skafrenningur og skaflar sem ná upp fyrir vélarhlíf á stórum breyttum bílum. Björgunarsveitir á Akranesi og Borgarnesi hafa einnig verið kallaðar út vegna ófærðar. Á sjötta tímanum í nótt var Björgunarsveitin Týr frá Svalbarðseyri kölluð út til að losa rútu sem var föst í austanverðu Víkurskarði. Átta manns voru í bílnum.
Mest lesið Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Innlent „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Innlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Erlent „Klukkan tifar“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Innlent Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Innlent Fleiri fréttir Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Skipar Eirík og Hildi sem landsréttardómara Landrisi í Öskju er lokið Nú má heita Hugríkur Húrinn og Aelía Rúa Ótímabært að hugsa um áhrif mögulegs verkfalls á sjúkraflug „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ „Þjóðin á rétt á að vita“ Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja „Í þessu máli þá sat viðkomandi ekki skemur í fangelsi vegna lagabreytingarinnar“ „Bjór var drukkinn á Íslandi áður en Alþingi leyfði það“ Best að vera ekki með stórar yfirlýsingar Dómari kannar aðbúnað barna í vist á einkaheimilum Dómsmálaráðherra svarar gagnrýni á reynslulausn Uppsögn kjarasamninga geti verið óhjákvæmileg Rafmagnslaust í Mosfellsdal Vara við vasaþjófum á Norðurlandi eystra Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Sjá meira