Beðið eftir skýrslu starfshóps um uppbyggingu í heilsugæslu 6. febrúar 2008 15:39
Starfshópur á vegum heilbrigðsráðherra fer nú yfir stöðuna í heilsugæslu á höfuðborgarsvæðinu og hyggst ráðherra bíða eftir skýrslu hans áður en frekari áform um uppbyggingu verða tekin. Þetta sagði Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Álfheiður Ingadóttir, þingmaður Vinstri - grænna, kvaddi sér hljóðs og sagði ástandið í heilsugæslumálum á höfuðborgarsvæðinu óþolandi. Vísaði hún meðal annars til þess í málinu sínu að um 8300 manns væru án heimilislæknis og þá vantaði 500 milljónir króna til heilsugæslunnar á þessu ári, annars vegar til rekstrar og hins vegar vegna skulda við birgja. Spurði hún ráðherra hvernig hann hygðist bregðast við ástandinu. Ráðherra sagði það rangt að það vantaði hálfan milljarð í heilsugæsluna en sagði menn hafa farið yfir málefni hennar frá því að hann hefði komið inn í ráðuneytið í fyrra. Hann hefði skipað sérstakan starfshóp undir forystu Guðjóns Magnússonar hjá Evrópudeild Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar til að fara yfir málið. Sá hópur myndi skila skýrslu á vormánuðum. Guðlaugur Þór sagðist enn fremur hafa rætt við forystumenn innan heilsugæslunnar um framtíðaruppbyggingu og síðast í dag hefði hann rætt við yfirlækna um málið. Benti hann á áform um stækkun læknastöðvar í Árbæ og miðbæ en sagði frekari áform um uppbyggingu bíða þar til starfshópurinn hefði skilað sínum hugmyndum. Ljóst væri að vaxandi verkefni yrði í heilsugæslunni í framtíðinni. Álfheiður Ingadóttir sagði hins vegar að tölur hennar um 500 milljóna króna skort innan heilsugæslunnar kæmu frá tveimur mönnum innan heilsugæslunnar, öðrum þeirra forstjóranum sjálfum. Sagði Álfheiður afskaplega mikilvægt að taka heildstætt á heilsugæslunni. Að hennar mati væri heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu of stór stofnun og of miðstýrð. Enn fremur benti hún á að ástandi væri langverst á höfuðborgarsvæðinu og því væri í raun um grófs mismunun að ræða gagnvart íbúum þess svæðis.
Mest lesið Sagður hafa bannað Ísraelum að drepa æðstaklerkinn Erlent Lengdist um níu sentímetra og lærði að ganga upp á nýtt Innlent „Lögreglan var ekki að gera það í fyrsta sinn“ Innlent Hlupu frá Danmörku til Svíþjóðar Erlent Fresta leit að Sigríði Innlent „Svo bakkarðu upp að línu og þenur drusluna“ Innlent Rukkuð um hundrað þúsund fyrir stutta ferð frá flugvellinum Innlent Umræða um bókun 35 taki ekki tíma frá öðrum málum Innlent Skýrsla tekin af frönsku konunni og búið að ræða við vitni Innlent Andlát frönsku ferðamannanna vekur eftirtekt erlendis Innlent Fleiri fréttir „Svo bakkarðu upp að línu og þenur drusluna“ Umræða um bókun 35 taki ekki tíma frá öðrum málum Dvalarheimili klárt á Laugarvatni en ekkert gerist í stjórnkerfinu „Lögreglan var ekki að gera það í fyrsta sinn“ Fresta leit að Sigríði Slökktu gróðurelda á Ströndum með aðstoð þyrlu Lengdist um níu sentímetra og lærði að ganga upp á nýtt Andlát frönsku ferðamannanna vekur eftirtekt erlendis Skýrsla tekin af frönsku konunni og búið að ræða við vitni Uppnám á Alþingi og í beinni frá Bíladögum „Stjórnlaus“ ríkistjórnin beiti rökum úr verkfærakistu Trumps Þingmenn stjórnarandstöðu foxillir yfir því að funda á sunnudegi Fimmtíu manns tóku þátt í leit sem stóð til fjögur í nótt Hár orkukostnaður er áhyggjuefni hjá atvinnulífinu Leitað að konu á sextugsaldri, fíkniefni á landamærum og skundað á Þingvöll Grunur um tvö kynferðisbrot á bíladögum Þinglok, Íran og rökrætt um skattastefnu Einn handtekinn eftir hópslagsmál Hitnaði í hamsi: „Forseti er með orðið!“ Lögreglan lýsir eftir Sigríði Börnin heim eftir meiriháttar vandræðagang Ólga meðal þristavina vegna örlaga Gunnfaxa Rukkuð um hundrað þúsund fyrir stutta ferð frá flugvellinum Segir íslenska nemendur og skóla fljúga blindflug án samræmds námsmats Fékk hláturskast í ræðustól „Það er svo mikið rugl í gangi“ Brautskráði soninn á síðustu útskriftinni Nýtt dæluhús veldur óánægju á Selfossi „Þetta eru alvarlegir stunguáverkar“ Segir landráðskæru fráleita: „Þetta er mjög hættuleg þróun fyrir íslenskt samfélag“ Sjá meira