Skimun vegna ristilkrabbameins hefst í byrjun næsta árs 6. febrúar 2008 15:19 MYND/Auðunn
Reiknað er með að skimun á krabbameini í ristli hefjist í upphafi næsta árs. Þetta kom fram í svari Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Álfheiðar Ingadóttur, þingmanns Vinstri - grænna, á Alþingi í dag.Álfheiður benti á að Alþingi hefði í fyrra samþykkt þingsályktunartillögu um að beina því til stjórnvalda að hefja skimun á krabbameini í ristli. Skimunin hafi átt að hefjast í ár og brýnt væri að ráðast í hana til þess að draga úr dánartíðni af völdum þessarar tegundar krabbameins.Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra sagði um umfangsmikið verk að ræða og þegar hefði mikil vinna verið lögð í það. Hugmyndir væru uppi um að hefja leit að krabbameini í ristli hjá 60-69 ára af báðum kynjum. Vísaði hann til þess að aðrar þjóðir hefðu margar byrjað á slíkri skimun í afmörkuðum hópum.Ráðherra sagði málið ekki einfalt og það þyrfti að undirbúa það vel og hann reiknaði með að skimun vegna sjúkdómsins gæti hafist snemma í byrjun næsta árs.Álfheiður spurði ráðherra einnig um það hvort áform væru uppi um að hefja skimun á blöðruhálskirtilskrabbameini sem væri vaxandi vandamál í hinum vestræna heimi. Ráðherra svaraði því til að skipuleg leit að því tíðkaðist ekki hjá nágrannaþjóðum og væri það vegna skorts á greiningaraðferðum. Mál væru hins vegar í örri þróun og full ástæða væri til að fylgjast vel með henni.
Mest lesið Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Innlent „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Innlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Erlent „Klukkan tifar“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Innlent Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Innlent Fleiri fréttir Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Skipar Eirík og Hildi sem landsréttardómara Landrisi í Öskju er lokið Nú má heita Hugríkur Húrinn og Aelía Rúa Ótímabært að hugsa um áhrif mögulegs verkfalls á sjúkraflug „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ „Þjóðin á rétt á að vita“ Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja „Í þessu máli þá sat viðkomandi ekki skemur í fangelsi vegna lagabreytingarinnar“ „Bjór var drukkinn á Íslandi áður en Alþingi leyfði það“ Best að vera ekki með stórar yfirlýsingar Dómari kannar aðbúnað barna í vist á einkaheimilum Dómsmálaráðherra svarar gagnrýni á reynslulausn Uppsögn kjarasamninga geti verið óhjákvæmileg Rafmagnslaust í Mosfellsdal Vara við vasaþjófum á Norðurlandi eystra Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Sjá meira