Íslenskt félag virkjar í Bosníu og Hersegóvínu 6. febrúar 2008 10:19 Úr myndasafni.
Íslenska orkufyrirtækið Iceland Energy Group hyggst byggja og reka tvær vatnsaflsvirkjanir í Bosníu og Hersegóvínu samkvæmt viljayfirlýsingum sem undirrituð var í síðasta mánuði. Það gerðu Bjarni Einarsson, stjórnarformaður Iceland Energy Group, og Rajko Ubiparip, orkumálaráðherra lýðveldisins.Fram kemur í tilkynningu frá Iceland Energy Group að heildarkostnaður við framkvæmdirnar sé áætlaður um 600 milljónir evra eða um 55 milljarðar íslenskra króna. Um er að ræða 450 og 55 megavatta virkjanir í ánni Drina við landamæri Bosníu og Hersegóvínu og Serbíu.Til samanburðar má geta þess að heildarraforkukerfi Bosníu og Hersgóvínu er nú um 2000 megavött. Þær virkjanir sem um ræðir munu því stækka raforkukerfi landsins um fjórðung. Til samanburðar má geta þess að Kárahnjúkavirkjun er 690 megavött.Árni Jensen, forstjóri Iceland Energy Group, segir að um mjög spennandi verkefni sé að ræða. „Það er viðvarandi orkuskortur á öllum Balkanskaganum enda á sér þar nú stað mikil efnahagsleg uppbygging. Á svæðinu eru mikil tækifæri til að nýta sérfræðiþekkingu okkar Íslendinga á virkjun umhverfisvænnar orku. Við horfum líka til þess að á þessu ári opnar útboðsmarkaður á raforku í Evrópu sem gerir framleiðendum á raforku færi á að selja orku hvar sem er í Vestur- og Mið Evrópu."Gert er ráð fyrir að virkjanirnar verði að 51 prósenti í eigu Iceland Engery Group og 49 prósent verði í sameiginlegri eigu Bosníu og Hersegóvínu og Serbíu. Á næstu sex mánuðum er stefnt að því að ljúka samningum um framkvæmdirnar og reiknað er með að þær hefjist í ársbyrjun 2009. Iceland Energy Group er íslenskt orkufyrirtæki sem hefur það að markmiði að fjárfesta í vatns- og gufuaflsvirkjunum í Suðaustur-Evrópu. Eigendur og stór hópur samstarfsaðila fyrirtækisins búa yfir sérþekkingu á skipulagningu, hönnun, byggingu og rekstri virkjana hér á landi og erlendis. Félagið hefur verið starfrækt í fjögur ár og er með fjölmörg önnur verkefni til skoðunar í Suðaustur-Evrópu eftir því sem segir í tilkynningunni. Félagið er í eigu Bjarna Einarssonar, Árna Jensens og hóps íslenskra fagfjárfesta.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira